markaðsstarf

HD Iðn- og tækniþjónusta kynnir nýtt þjónustuframboð á sviði fráveitulausna og skólphreinsunar. Með PMT Water Solutions (Veolia) sem valinn samstarfsaðila býður HD Alþsveitarfélögum, veitum og iðnfyrirtækjum aðgang að alþjóðlegri sérþekkingu og fjölbreyttum hreinsilausnum, samhliða öflugri innlendri tækniþjónustu.
HD hefur afhent Borgarholtsskóla laserskurðarvél sem nýtist við kennslu nemenda í málmiðnaði. Með gjöfinni vill fyrirtækið efla iðnmenntun á Íslandi og styðja við þá færni sem atvinnulífið kallar eftir.
HD og hugbúnaðarfyrirtækið Tero kynna viðhaldsstjórnun á Lagarlífi 2026.
HD og hugbúnaðarfyrirtækið Tero hafa tekið höndum saman um að tengja ástandsvöktun og -greiningar á vélbúnaði, við viðhaldsstjórnun. Markmiðið er að greina frávik snemma og tryggja að upplýsingar um ástand búnaðar leiði til réttra aðgerða á réttum tíma. Samstarfið verður kynnt á IceFish 2026.
HD tekur þátt í sjávarútvegssýningunni IceFish 2026 sem fram fer í Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september. Á sýningunni kynnir HD heildstæða iðn- og tækniþjónustu fyrir sjávarútveg og fiskeldi, þar á meðal ástandsvöktun og -greiningar, skipaviðgerðir, stálsmíði, vélsmíði og búnaðarlausnir.
Nýlega lauk HD við hönnun og smíði tveggja stálvegvísa fyrir Safn Gísla á Uppsölum í Selárdal í Arnarfirði. Vegvísarnir eru gjöf frá HD til safnsins og hefur þeim fyrri þegar verið komið fyrir þar sem hann mun taka á móti gestum og vísa þeim leið að safninu. Safnið verður formlega opnað 7. ágúst 2026.
HD iðn- og tækniþjónusta hefur lokið uppbyggingu nýrrar tilraunaverksmiðju kanadíska tæknifyrirtækisins Syntholene Energy á Húsavík, þar sem þróuð er ný kynslóð tækni til framleiðslu vetnis og kolefnishlutlauss flugeldsneytis með nýtingu jarðhita.
HD Industrial & Technical Services, an Iceland-based engineering and service company with more than 3 decades of experience supporting critical energy infrastructure, is presenting its geothermal and power generation capabilities at the World Geothermal Congress (WGC).
HD hefur hlotið Þekkingarviðurkenningu Félags viðskipta- og hagfræðinga 2026 fyrir framúrskarandi vegferð í uppbyggingu þekkingardrifinnar iðn- og tækniþjónustu.
Secret Link

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.