HD er eitt stærsta iðn- og tæknifyrirtæki landsins og leiðandi á sviði málmtækni, vélbúnaðar, stálsmíði og tækniþjónustu. Fyrirtækið þjónustar sjávarútveg, fiskeldi, orkuiðnað og umhverfistengda starfsemi um allt land með sérhæfðum og áreiðanlegum lausnum.
HD býður upp á heildstæða þjónustu sem spannar stál- og vélsmíði, hönnun og smíði dælu- og lagnakerfa, viðhald túrbína og rafala, innflutning búnaðar og varahluta og víðtæka tækniþjónustu.
Sem hluta af þessari þjónustu leggur fyrirtækið jafnframt áherslu á ástandsgreiningu og sívöktun vélbúnaðar, þar sem nýjustu tækni, svo sem 3D skönnun og skaðlausar prófanir (NDT), eru nýttar til að greina frávik og bilanir snemma. Með þeirri nálgun er unnt að lágmarka rekstrarstöðvanir, lengja líftíma búnaðar og stuðla að öruggum og skilvirkum rekstri.
HD á rætur að rekja til Hamars ehf. (stofnað 1998) og hefur vaxið hratt með sameiningu við Deili tækniþjónustu, NDT ehf. og Vélar ehf. Sameinað undir einu nafni hefur orðið til öflugur og reynslumikill þjónustuaðili sem í dag er meðal stærstu fyrirtækja landsins á sínu sviði.
Fyrirtækið hefur djúpar rætur í sjávarútvegi og þjónustar greinina á öllum stigum virðiskeðjunnar. Þjónusta við fiskeldi hefur jafnframt vaxið hratt með lausnum fyrir ört vaxandi geira. Þá er orkuiðnaður og stóriðja umfangsmesti hluti starfseminnar, þar sem HD sinnir reglubundnu viðhaldi og þjónustu í orkuverum og veitum. Samhliða því hefur verið byggð upp sérhæfð þjónusta fyrir kolefnisförgun og aðra umhverfistengda starfsemi.
Starfsstöðvar HD eru sérhæfðar og búnar tækjabúnaði sem styður við hvert svið. Fyrirtækið rekur meðal annars verkstæði fyrir viðhald túrbína, rafala og annarra lykilkerfa orkuiðnaðarins, auk stærsta tjakkaverkstæðis landsins. Hjá HD starfa um tvö hundruð manns með fjölbreytta reynslu og sérhæfða þjálfun.
HD er framsækið og lausnadrifið fyrirtæki með sterka stoð í íslenskum iðnaði. Fyrirtækið leggur áherslu á traust, ábyrgð og langtímasamstarf og bregst hratt og faglega við þegar verkefni kalla, þannig að viðskiptavinir geti einbeitt sér að sínum kjarnaverkefnum.
HD starfrækir vottað gæðakerfi samkvæmt ISO 9001:2015 og hefur jafnlaunavottun. Lögð er rík áhersla á menntun og þekkingu starfsfólks, jafnrétti og gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Gildin; öryggi, heiðarleiki, þjónustulund og fagmennska, eru leiðarljós í allri starfsemi fyrirtækisins.
Markmið HD er að vera fyrsta val viðskiptavina á sviði málmtækni, vélbúnaðar, stálsmíði og tækniþjónustu á landsvísu.
Fyrir hönd HD ehf.
Árni Rafn Gíslason Forstjóri