Handverk sem vísar veginn

Það er alltaf ánægjulegt þegar þekking, fagmennska og handverk starfsfólks HD fá að njóta sín í verkefnum sem skilja eftir sig varanleg spor.

Nýlega lauk HD við hönnun og smíði tveggja stálvegvísa fyrir Safn Gísla á Uppsölum í Selárdal í Arnarfirði. Vegvísarnir eru gjöf frá HD til safnsins og munu taka á móti gestum og vísa þeim leið að safninu þegar það opnar formlega þann 7. ágúst 2026.

Fyrsti vegvísirinn hefur þegar verið settur upp og setur sterkan svip á aðkomuna að safninu. Hinn verður settur upp fyrir opnun safnsins.

Sameinar hönnun, handverk og tæknilega þekkingu

Vegvísarnir voru hannaðir af tæknimönnum HD eftir fyrirmynd og síðan laserskornir úr stáli í verkstæði HD í Kópavogi. Útkoman er áberandi stálskúlptúr sem sameinar list, hönnun og vandað handverk og fellur einstaklega vel að hrjóstrugu landslaginu í Selárdal.

Verkefnið er gott dæmi um hvernig sérþekking starfsfólks HD nýtist ekki aðeins í þjónustu við íslenskan iðnað heldur einnig í verkefnum sem styðja við menningu, sögu og samfélag.

Stolt af framlaginu

Við hjá HD erum stolt af því að hafa fengið tækifæri til að leggja okkar af mörkum til þessa áhugaverða verkefnis. Það er ánægjulegt að sjá afrakstur vinnunnar kominn á sinn stað og verða hluta af upplifun þeirra sem heimsækja Safn Gísla á Uppsölum.

Við hlökkum til að segja nánar frá verkefninu þegar seinni vegvísirinn verður settur upp.

Óhætt er að segja, að stálvegvísirinn taki sig vel út í vestfirsku þokunni þar sem hann tekur á móti gestum á leið að safninu.

Vegvísir fluttur á áfangastað
Heppileg staðsetning fundin
Borað fyrir festingu

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.