Auknar kröfur til skólphreinsunar kalla á markvissan undirbúning og lausnir sem taka mið af íslenskum aðstæðum og framtíðarþörfum.
HD aðstoðar sveitarfélög, veitur og fyrirtæki við að meta stöðu fráveitukerfa, finna hentugar hreinsilausnir og koma þeim í framkvæmd – frá fyrstu greiningu til uppsetningar, gangsetningar og áframhaldandi þjónustu.
HD vinnur í nánu samstarfi við PMT Water Solutions (Veolia), valinn samstarfsaðila HD á sviði skólphreinsitækni, sem veitir sérfræðistuðning við þarfagreiningu, lausnaval og tæknilega útfærslu.
Nánari upplýsingar
Auknar kröfur til skólphreinsunar, vöktunar og gagna kalla á markvissan undirbúning.
HD aðstoðar við að velja fráveitulausnir sem mæta þörfum dagsins í dag og taka jafnframt mið af framtíðarálagi og þróun krafna. Mikilvægast er að þekkja stöðuna, skilgreina næstu skref og velja lausn sem hægt er að byggja áfram á.
HD leiðir verkefnið áfram í nánu samstarfi við sérfræðinga PMT Water Solutions, sem veita tæknilegan stuðning við greiningu á þörfum og val á hentugum hreinsilausnum.
01 – Stöðumat
Mat á núverandi kerfum, álagi, fyrirliggjandi gögnum og framtíðarþörfum með aðkomu viðeigandi sérfræðinga.
02 – Valkostir
Skilgreining á hreinsunarþörf og könnun á mögulegum tæknilausnum.
03 – Lausnaval
Mat á afkastagetu, búnaði, kostnaði og möguleikum á áfangaskiptri uppbyggingu.
04 – Framkvæmd
Verkefnastjórnun, búnaður, smíði, uppsetning og gangsetning.
05 – Rekstur og þjónusta
Viðhald, vöktun, varahlutir og tæknileg þjónusta sem styður við áreiðanlegan rekstur til lengri tíma.
Alþjóðleg sérþekking – staðbundin framkvæmd
HD hefur valið PMT Water Solutions (Veolia) sem samstarfsaðila á sviði skólphreinsitækni. Með nánu samstarfi við sérfræðinga PMT hefur HD aðgang að alþjóðlegri reynslu og sérþekkingu við greiningu á þörfum, lausnaval og tæknilega útfærslu fráveituverkefna.
HD annast staðbundna framkvæmd og þjónustu á Íslandi.
Tækni og sérfræðistuðningur
(PMT Water Solutions)
Kynntu þér hreinsitækni og lausnir PMT Water Solutions:
Sjá nánar: PMT Water Solutions
Framkvæmd og þjónusta
(HD)
Fjölbreyttar lausnir fyrir ólíkar aðstæður
Þarfir fráveitna eru ólíkar og rétta lausnin ræðst meðal annars af núverandi kerfi, magni og samsetningu skólps, umhverfisaðstæðum og framtíðaráformum.
HD aðstoðar við að finna hentugar lausnir, hvort sem um er að ræða minni fráveitukerfi, stærri hreinsistöðvar eða uppfærslu á núverandi búnaði.
Hreinsistöðvar
Nýjar hreinsistöðvar og uppfærsla á núverandi hreinsun fyrir sveitarfélög, veitur og fyrirtæki.
Einingabundnar hreinsilausnir
Fyrirferðarlitlar og sveigjanlegar lausnir sem geta hentað minni og meðalstórum fráveitukerfum.
Áfangaskipt uppbygging
Lausnir sem gera kleift að hefja hreinsun þar sem þörfin er mest og auka afkastagetu eftir því sem þörfin þróast.
Dælustöðvar og fráveitukerfi
Dælur, lagnir og búnaður fyrir fráveitukerfi af ólíkum stærðum og gerðum.
Iðnaðarskólp
Lausnir fyrir forhreinsun og meðhöndlun skólps frá iðnaði, meðal annars sjávarútvegi, fiskeldi, landeldi og matvælaframleiðslu.
Vöktun og rekstrarstuðningur
Mælingar, ástandsvöktun og viðhaldsþjónusta sem stuðla að betri yfirsýn og auknu rekstraröryggi.

Fyrir minni og meðalstór fráveitukerfi geta staðlaðar og einingabundnar hreinsistöðvar verið hagkvæmur og sveigjanlegur valkostur. Slíkar lausnir geta auðveldað uppbyggingu skólphreinsunar í áföngum án umfangsmikilla mannvirkjaframkvæmda.
Mögulegir kostir einingabundinna lausna:
Sveitarfélög og veitur
Uppbygging hreinsistöðva, uppfærsla núverandi kerfa, dælustöðvar, áfangaskipt uppbygging og áframhaldandi tæknileg þjónusta.

Iðnaður og matvælaframleiðsla
Forhreinsun iðnaðarskólps, dælur, lagnakerfi, búnaður, uppsetning, viðhald og þjónusta.
Ráðgjafar og hönnuðir
Aðstoð við öflun tæknigagna, afkastaupplýsinga, lausnaval, búnaðarval og tæknilega útfærslu verkefna.
Hvort sem þið eruð að stíga fyrstu skrefin, skoða tæknilega valkosti eða undirbúa framkvæmdir getur HD aðstoðað við að skilgreina næstu skref í uppbyggingu fráveitunnar.
Samtal við HD um stöðuna og mögulega valkosti er alveg án skuldbindinga.
Persónueining er mælikvarði á lífrænt álag sem samsvarar álagi frá einum einstaklingi á dag. Álag er metið í persónueiningum en ekki eingöngu út frá íbúafjölda, því atvinnustarfsemi og ferðaþjónusta geta aukið álagið verulega.
Já. Skólp frá minni byggðum þarf einnig viðeigandi hreinsun. Heilbrigðisnefnd metur hvað telst viðeigandi með hliðsjón af viðtaka og álagi. Áfangaskipt lausn, t.d. hreinsistöð í gámi, getur hentað vel.
Starfandi fráveitur sem nota síubúnað samkvæmt eldri reglugerð geta við ákveðnar aðstæður haldið notkun hans áfram til 31. desember 2027. Gott er að nýta tímann til að meta stöðuna, afla gagna og undirbúa næsta áfanga.
Já, og það er oft skynsamlegasta leiðin. Byrjað er á forhreinsun og bætt við líffræðilegri hreinsun og seyrumeðhöndlun í áföngum. Mikilvægt er að velja lausnir sem hægt er að stækka.
Það fer eftir umfangi og þeim gögnum sem liggja fyrir. Hafðu samband og við förum yfir málið með þér og gerum tillögu að umfangi.