Gísli á Uppsölum

Nýlega lauk HD við hönnun og smíði tveggja stálvegvísa fyrir Safn Gísla á Uppsölum í Selárdal í Arnarfirði. Vegvísarnir eru gjöf frá HD til safnsins og hefur þeim fyrri þegar verið komið fyrir þar sem hann mun taka á móti gestum og vísa þeim leið að safninu. Safnið verður formlega opnað 7. ágúst 2026.
HD iðn- og tækniþjónusta hefur lokið uppbyggingu nýrrar tilraunaverksmiðju kanadíska tæknifyrirtækisins Syntholene Energy á Húsavík, þar sem þróuð er ný kynslóð tækni til framleiðslu vetnis og kolefnishlutlauss flugeldsneytis með nýtingu jarðhita.
HD Industrial & Technical Services, an Iceland-based engineering and service company with more than 3 decades of experience supporting critical energy infrastructure, is presenting its geothermal and power generation capabilities at the World Geothermal Congress (WGC).
HD hefur hlotið Þekkingarviðurkenningu Félags viðskipta- og hagfræðinga 2026 fyrir framúrskarandi vegferð í uppbyggingu þekkingardrifinnar iðn- og tækniþjónustu.
Þegar rekstraröryggi skiptir öllu geta bilanir í lykilbúnaði haft verulegar afleiðingar. Bilun í heitavatnsdælu er ekki aðeins tæknilegt vandamál heldur getur hún valdið því að það frjósi í lögnum, með tilheyrandi heitavatnsleysi og verulegu samfélagslegu og fjárhagslegu tjóni.
D býður upp á faglega þjónustu við nýsmíði, viðgerðir og viðhald á vökva- og lofttjökkum. Með áralangri reynslu og sterkri þekkingu á efnisvali leggur fyrirtækið áherslu á lausnir sem styðja við öruggan og hagkvæman rekstur.
Nýverið birtist grein um lausnir HD í fiskeldi í tímaritinu Cool Atlantic, þar sem fjallað er um mikilvægi dælulausna og ástandsdrifins viðhalds í nútíma rekstri eldisstöðva.
Góðir gestir heimsóttu HD ehf. í Mosfellsbæ þar sem kastljósið var á framþróun í sérhæfðri starfsemi fyrirtækisins á sviði rótor- og leiðiskófluviðgerða.
Fulltrúar HD hafa undanfarin ár lagt leið sína á Seafood Processing Global, en í ár var ákveðið að stíga skrefið til fulls og vera með eigin aðstöðu á sameiginlegum bás Íslandsstofu, 3BB201-G, þar sem við bjóðum viðskiptavini velkomna að setjast niður yfir hressingu og spjalli.
HD Iðn- og tækniþjónusta hefur tekið í notkun stækkað rótorverkstæði á starfsstöð sinni í Mosfellsbæ og getur nú sinnt viðgerðum á tveimur jarðvarmarótorum samtímis.

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.