HD hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026, tíunda árið í röð. Fyrirtækið er þar með í hópi þeirra 2,5% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um rekstur og fjárhagslega stöðu.
Viðurkenningin byggir meðal annars á mati á rekstrarafkomu, eiginfjárhlutfalli, lánshæfi og skilum ársreikninga. Að hljóta hana tíu ár samfellt endurspeglar traustan rekstur og stöðugleika HD til lengri tíma.
„Það er sérstakt ánægjuefni að hljóta þessa viðurkenningu tíunda árið í röð. Slíkur árangur næst ekki af sjálfu sér heldur byggir á fagmennsku, þekkingu og samstilltu átaki starfsfólks okkar. Ég vil þakka öllu starfsfólki HD fyrir mikilvægt framlag til árangurs fyrirtækisins. Þetta er viðurkenning sem við getum öll verið stolt af,“ segir Árni Rafn Gíslason, forstjóri HD.
Viðurkenningin er jafnframt hvatning til að halda áfram að efla starfsemi HD og byggja á þeim trausta grunni sem lagður hefur verið.