HD á IceFish 2026

HD tekur þátt í sjávarútvegssýningunni IceFish 2026 sem fram fer í Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september. Gestir geta hitt sérfræðinga HD og kynnt sér þjónustu fyrirtækisins á bás C40.

Á sýningunni kynnir HD heildstæða iðn- og tækniþjónustu fyrir sjávarútveg og fiskeldi, þar á meðal ástandsvöktun og -greiningar, skipaviðgerðir, stálsmíði, vélsmíði og búnaðarlausnir.

Sérstök áhersla verður á ástandsvöktun og ástandsdrifið viðhald og hvernig hægt er að greina frávik snemma og bregðast við áður en þau leiða til bilana og óvæntra stöðvana. Á bás HD  verður hermir sem sýnir vöktun í rauntíma og hvernig sítengd gagnasöfnun og gervigreind nýtast við greiningu vélbúnaðar og skipulagningu viðhalds.

HD vinnur jafnframt að þróun lausna á sviði viðhaldsstjórnunar þar sem upplýsingar um ástand búnaðar eru tengdar betur við skipulag og framkvæmd viðhalds. Með því fæst betri yfirsýn og grundvöllur fyrir markvissari ákvarðanir um viðhald.

Með fjölbreyttri sérþekkingu, öflugum verkstæðum og heildstæðri þjónustu getur HD fylgt verkefnum frá greiningu til viðhalds, viðgerða og framkvæmdar, með aukið rekstraröryggi og minni niðritíma að leiðarljósi.

HD býður viðskiptavinum frían aðgang 

Hafðu samband við þinn tengilið eða sendu tölvupóst á sala@hd.is og fáðu sendan boðskóða frá HD. Sláðu kóðann inn við skráningu og miðaverðið færist sjálfkrafa niður í 0,00 kr. 

Verið velkomin á bás C40 – við hlökkum til að sjá ykkur!

HD hefur þjónustað íslenskan sjávarútveg í áratugi og er í dag meðal stærstu og reynslumestu þjónustuaðila á sínu sviði á Íslandi.

HD býður traustar dælulausnir, hannaðar fyrir krefjandi aðstæður á sjó og landi – hvort sem þarf að dæla sjó, slógi eða tæma tanka.

Vottaðar þykktarmælingar eru lykilþáttur í öryggiseftirliti skipa og hjálpa útgerðum að greina slit og tæringu áður en vandamál verða kostnaðarsöm.

Ástandsgreining er ekki bara tæknibúnaður heldur stjórntæki í rekstri

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.