HD hefur fengið umboð fyrir sænska tæknifyrirtækið PureSignal, sem sérhæfir sig í háþróuðum lausnum fyrir ástandsvöktun og ástandsdrifið viðhald á vélbúnaði. Með samstarfinu styrkir HD þjónustu sína á sviði gagnadrifinnar ástandsgreiningar, þar sem öflugur tæknigrunnur styður við betri ákvarðanatöku, lægri líftímakostnað búnaðar og minni rekstraráhættu.