Orku og iðnaðartæknifræði

HD Iðn- og tækniþjónusta hefur á undanförnu misseri gert markvissar breytingar á forystu fyrirtækisins með ráðningu nýrra stjórnenda. Með þessum skrefum er lögð aukin áhersla á tæknilega forystu, markaðsstarf og áframhaldandi uppbyggingu félagsins, til að styðja við vöxt og enn öflugri þjónustu við íslenskt atvinnulíf.
HD hefur ráðið Valgeir Pétursson í starf sviðsstjóra nýs tæknisviðs fyrirtækisins. Í nýju skipuriti sameinast tæknideild og ástandsgreiningardeild undir einu öflugu sviði sem mun efla tæknilega forystu HD og styðja við áframhaldandi vöxt og þróun fyrirtækisins.
HD tók nýverið á móti hópi nema í orku- og iðnaðartæknifræði í starfsstöð fyrirtækisins í Mosfellsbæ. Markmið heimsóknarinnar var að kynna starfsemi HD, veita innsýn í sérhæfð verkefni fyrirtækisins og skapa samtal um tækifæri innan greinarinnar í framtíðinni.
HD ehf. og ÍSOR hafa undirritað samning við DGDC Ltd. (Dominica Geothermal Development Company Ltd.) um eftirlit með gangsetningu og rekstri 10 MW gufuaflsvirkjunar á Dóminíka í Karíbahafi.
HD hefur nú gefið út sitt eigið dagatal fyrir árið 2026. Myndir dagatalsins eru teknar úr daglegri starfsemi HD – og eflaust munu margir þekkja bæði andlit og verk sem þar koma fyrir.
ThinkGeoEnergy, alþjóðlegur vefmiðill og ein helsta upplýsingaveita jarðvarmageirans, hefur birt viðtal við Lýð Skúlason, sérfræðingur í jarðvarmamálum og framkvæmdastjóri orkusviðs HD, þar sem fjallað er um þá uppbyggingu sem HD hefur leitt á sviði viðgerða og þjónustu við túrbínubúnað á Íslandi.
Að tryggja rekstraröryggi orkuinnviða á Íslandi krefst öflugrar innviðaþjónustu, sérhæfðrar tæknikunnáttu og skjótrar viðbragðsgetu. Þetta kom skýrt í ljós í nýgangsettu orkuveri HS Orku í Svartsengi, þar sem HD gegndi lykilhlutverki við uppsetningu vélbúnaðar.
HD óskar HS Orku innilega til hamingju með formlega gangsetningu sjöunda orkuversins í Svartsengi, sem fram fór við hátíðlega athöfn í vikunni. Nýja vélasamstæðan er 55 MW gufuhverfill og sá stærsti sinnar tegundar á Íslandi. Þetta krefjandi og tæknilega umfangsmikla verkefni markar stórt skref í áframhaldandi uppbyggingu og sjálfbærri nýtingu jarðhita á Reykjanesi.
HD hefur hlotið viðurkenningu frá HR Monitor sem eitt af leiðandi íslenskum fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði til að hljóta titilinn Mannauðshugsandi fyrirtæki 2025. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem HD hlýtur þessa viðurkenningu, en fyrirtækið hefur fengið hana síðustu árin, sem endurspeglar stöðuga og markvissa áherslu á mannauð og starfsánægju.
Við erum stolt af því að vera enn á ný í hópi framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo árið 2025 – líkt og við höfum verið óslitið frá árinu 2017. Þessi viðurkenning staðfestir að HD hefur lánshæfiseinkunn í hæsta gæðaflokki, sem endurspeglar sterka rekstrarstöðu, áreiðanleika og ábyrga fjármálstjórn

What are you looking for?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.