Hydraulic cylinder workshop

HD býður upp á faglega og sérhæfða þjónustu við nýsmíði, viðgerðir og viðhald á vökva- og lofttjökkum. Áralöng reynsla starfsmanna, sérþekking og öflugur tækjabúnaður tryggja að við uppfyllum strangar kröfur um nákvæmni, gæði og endingu.

Við þjónustum fyrirtæki um allt land, m.a. í útgerð, stóriðju, flutningum og matvælaiðnaði.

Foreman, hydraulic cylinders
Ormur H. Sverrisson
ommi@hd.is
M: +354 660 3630

New hydraulic cylinders

HD býður upp á mikinn sveigjanleika í sérsmíði á vökvatjökkum.

Við smíðum tjakka í ýmsum stærðum og með mismunandi virkni, sniðna að þörfum hvers viðskiptavinar. Lausnirnar byggja á verkþekkingu og hágæða efnisvali, þar á meðal þéttingum, sem tryggja endingargóða og áreiðanlega tjakkalausn.

Holar stangir - langsum borun

HD býr yfir sérþekkingu í vinnslu tjakkstanga þar sem þörf er á langsum borun eða holri stöng.

Hol stöng getur verið hagnýt lausn þegar einfalda þarf lagnaleiðir, vernda mælibúnað eða laga búnað að breyttum rekstrarkröfum.

Við bjóðum:

  • Langsum borun í gegnum tjakkastangir
  • Breytingar á núverandi stöngum
  • Nýsmíði vökvatjakka með holum stöngum
  • Lausnir þar sem leiða þarf glussa, skynjara eða annan búnað í gegnum stöng

Repairing hydraulic and pneumatic cylinders

HD annast upptektir, greiningar og viðgerðir á vökva- og lofttjökkum, auk þess að sérsmíða tjakka eftir þörfum. Við höfum aðgang að vel búnum lager með algengustu íhlutum og þéttum, sem flýtir fyrir viðgerðum, og sinnum jafnframt sérpöntunum fyrir sértækar lausnir og útfærslur.

Samhliða tjakkaverkstæðinu starfar fullbúið renniverkstæði með nýjustu tækjum og sérhæfðu starfsfólki. Sú aðstaða tryggir nákvæmni, gæði og skilvirkni í allri viðgerðarvinnu.

Örugg sundurtaka og samsetning

Tjakkaverkstæði HD er búið sérhæfðum tjakkabekk fyrir sundurrif og samsetningu á tjökkum, ásamt öflugum búnaði til þrýsti- og álagsprófana.

Rétt aðferðafræði minnkar líkur á skemmdum, eykur öryggi í vinnu og styður við skilvirka viðgerð – með það að markmiði að koma búnaði sem fyrst aftur í rekstur.

Pressure testing of hydraulic cylinders

Allir tjakkar sem fara frá HD eru prófaðir og vottaðir fyrir afhendingu, til að staðfesta virkni og lekaþol í samræmi við skilgreind viðmið. Prófanir stuðla að öruggari rekstri.

What are you looking for?

HD uses cookies, among other things, to improve user experience and analyze website traffic.