Öryggi er okkar hjartans mál og við skilgreinum öryggi sem líkamlegt öryggi, rekstraröryggi, upplýsingaöryggi og tilfinningalegt öryggi – öryggi er fyrir okkur öll.
Fyrirtækið hefur skilgreint markmið og mælikvarða til að styðja við og uppfylla gæðastefnuna sem endurskoðuð eru árlega með hliðsjón af árangri og frammistöðu.
Markmið:
HD ber ábyrgð á þeim áhrifum sem starfsemi fyrirtækisins hefur á umhverfið og leggur áherslu á að draga markvisst úr neikvæðum umhverfisáhrifum í allri starfsemi sinni.
Fyrirtækið stefnir að því að vera til fyrirmyndar í umhverfis- og loftslagsmálum innan sinna iðnaðarsviða. Það er gert með ábyrgum vinnubrögðum, skýrum markmiðum, reglulegum mælingum og stöðugum umbótum. Umhverfisstefnan er jafnframt grunnur að markmiðasetningu fyrirtækisins í umhverfismálum og er reglulega endurskoðuð til að tryggja að hún styðji við stefnu, áherslur og framtíðarsýn HD.
HD nýtir auðlindir af skynsemi, forðast sóun og velur umhverfisvænar lausnir þegar kostur er. Úrgangur er flokkaður, stuðlað er að endurnýtingu og endurvinnslu og markvisst unnið að því að minnka kolefnisspor starfseminnar. HD styðst við umhverfisstjórnunarbúnaðinn Klappir frá fyrirtækinu Grænar lausnir hf, til að mæla og miðla árangri í umhverfismálum.
Fyrirtækið leggur áherslu á að fyrirbyggja mengun og lágmarka umhverfisáhættu. Gengið er vel um vinnusvæði og leitast við að skilja betur við en komið er að. Við val á efni, búnaði, vélum, farartækjum og þjónustu er tekið mið af gæðum, öryggi, hagkvæmni og umhverfisáhrifum. HD leitast jafnframt eftir samstarfi birgja og þjónustuaðila sem leggja áherslu á ábyrga og sjálfbæra starfshætti.
Sem iðn- og tækniþjónustufyrirtæki stuðlar HD að aukinni nýtingu auðlinda með því að lengja líftíma búnaðar, bæta rekstraröryggi innviða og draga úr óþarfa endurnýjun tækja og kerfa. Með þjónustu okkar við orku-, veitu- og iðnaðarfyrirtæki styður fyrirtækið við sjálfbæra nýtingu auðlinda og áreiðanlegan rekstur mikilvægra innviða samfélagsins. HD mælir og fylgir eftir helstu umhverfisþáttum starfseminnar, svo sem orku- og eldsneytisnotkun, úrgangi og öðrum áhrifavöldum. Niðurstöður eru nýttar til markmiðssetningar og stöðugra umbóta.
Starfsfólk er frætt um umhverfismál og hvatt til virkrar þátttöku í umbótum. Umhverfisábyrgð er sameiginlegt verkefni alls fyrirtækisins.
Fyrirtækið virðir lög, reglur, leyfi og aðrar kröfur sem gilda um starfsemi starfssvæði þess og gerir árangur sýnilegan með reglulegri eftirfylgni og rýni. HD skuldbindur sig til stöðugra umbóta á umhverfisstjórnunarkerfi sínu til að bæta umhverfisárangur fyrirtækisins.
HD þróar lausnir sem styðja við sjálfbærni viðskiptavina og samfélagsins og leggur sérstaka áherslu á að þjónusta og verkefni taki mið af ábyrgri auðlindanýtingu og minni umhverfisáhrifum.
Umhverfisstefnan byggir á gildum fyrirtækisins: heiðarleika, öryggi, þjónustulund og fagmennsku. Með ábyrgum ákvörðunum og markvissum aðgerðum skapar HD varanleg verðmæti fyrir viðskiptavini, samfélagið og komandi kynslóðir.