Virkjanir

HD býður fjölbreyttar véla- og tæknilausnir til fyrirtækja í orkuiðnaði. Meginstefið í þjónustu okkar snýr að viðhaldi og viðgerðum á vélbúnaði, innflutningi á búnaði, varahlutum og hverskonar tækniþjónustu allt frá hönnun og undirbúningi verkefna til gangsetningar og reksturs. HD býður einnig fjölbreytta ráðgjafaþjónustu í rekstri orkuvera. Þar má nefna ráðgjöf í viðhaldsþjónustu, uppbyggingu og uppsetningu á viðhaldskerfum, verkefnastjórnun, ásamt því að bjóða þrepaskipta rekstrarþjónustu orkuvera. HD hefur þróað ferla fyrir viðgerðir á rafölum, gufutúrbínum, gufurótor viðgerðir, hönnun og smíði varahluta og íhluta í margar gerðir gufutúrbína. Starfsfólk HD hefur framkvæmt fjölmargar flóknari rótorviðgerðir á Íslandi, tugir upptekta á gufutúrbínum m.a. frá MHI, Fuji og Toshiba, ástandsgreiningum og viðgerðum á blokkum túrbína og leiðiskóflu viðgerðir. Félagið býr að sterku alþjóðlegu neti samstarfsaðila á sviði rafala og gufutúrbínuviðgerða. Þjónusta HD er sérsniðin að þörfum hvers viðskiptavinar með tilliti til viðhaldsstefnu þess rekstrar sem um ræðir. Við tryggjum viðskiptavinum okkar hæsta mögulega uppitíma vélbúnaðar og leggjum áherslu á góðan undirbúning fyrir skipulagðar viðhaldsstöðvanir.

Þjónusta

Vörur

Aukahlutir og annað

Brúkranar

Dælur

Tengiliðir

Aneta Basalaj
Mosfellsbær
Verkefnastjóri leiðiskóflur
Lýður Skúlason
Mosfellsbær
Deildarstjóri Mosfellsbæ
Daníel Rúnarsson
Mosfellsbær
Verkstjóri
Illugi Njálsson
Mosfellsbær
3D skönnun
Árni Jakob Ólafsson
Mosfellsbær
Verkefnastjóri
Gísli Arnar Guðmundsson
Akureyri
Ástandsgreiningar

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.