HD með bás á Seafood Expo Global í Barcelona

Fulltrúar HD hafa undanfarin ár lagt leið sína á Seafood Expo Global, en í ár var ákveðið að stíga skrefið til fulls og vera með eigin aðstöðu á sameiginlegum bás Íslandsstofu, þar sem við bjóðum viðskiptavini velkomna að setjast niður yfir hressingu og spjalli.

HD hefur þjónustað íslenskan sjávarútveg í meira en þrjá áratugi og er í dag meðal stærstu og reynslumestu þjónustuaðila á sínu sviði á Íslandi. Fyrirtækið hefur þróast í öflugan þjónustuaðila sem fylgist grannt með þróun í greininni og aðlagar sig stöðugt að nýjustu tækninýjungum og þörfum viðskiptavina. Með heildstæðu þjónustuframboði sér HD um verkefni frá upphafi til enda og finnur réttu lausnina, hver sem áskorunin er.

Við lítum á okkur sem samstarfsaðila útgerða, ekki aðeins þjónustuaðila. Það þýðir að við stöndum með viðskiptavinum okkar, leitum alltaf bestu lausnanna og leggjum okkur fram um að tryggja að rekstur þeirra haldist stöðugur og öruggur,“ segir Þorleifur Halldórsson, verkefnastjóri á útgerðarsviði HD.

Á sýningunni kynnir HD
  • Fjölbreytta þjónustu – frá þarfagreiningu til sölu á búnaði, uppsetningar og viðhalds
  • Lausnir fyrir fiskeldi, þar á meðal dælu- og lagnakerfi
  • Ástandsdrifið og fyrirbyggjandi viðhald, ásamt nýjungum í notkun gervigreindar

HD vinnur með fyrirtækjum af öllum stærðum með það að markmiði að tryggja stöðugan rekstur. Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum, nýjum sem núverandi, á bás 3BB201-G.

„Við lítum á okkur sem samstarfsaðila útgerða, ekki aðeins þjónustuaðila,“ segir Þorleifur Halldórsson verkefnastjóri á útgerðarsviði HD.

Stella Björg Kristinsdóttir, markaðsstjóri og Þorleifur Halldórsson, verkstjóri útgerðar taka vel á móti gestum á bás  3BB201-G.

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.