Grein um HD birt í Cool Atlantic

Nýverið birtist grein um lausnir HD í fiskeldi í tímaritinu Cool Atlantic, þar sem fjallað er um mikilvægi dælulausna og ástandsdrifins viðhalds í nútíma rekstri eldisstöðva.

Í greininni er farið yfir lykilhlutverk dælubúnaðar í fiskeldi og hvernig rétt hönnun og val búnaðar hefur bein áhrif á rekstraröryggi, afköst og velferð lífmassa. Einnig er fjallað um aukið vægi ástandsgreiningar, sem gerir rekstraraðilum kleift að greina frávik snemma, fyrirbyggja bilanir og lengja líftíma búnaðar.

HD hefur á undanförnum árum byggt upp sterka þekkingu á sviði dælulausna og viðhalds fyrir sjávarútveg og fiskeldi, og leggur áherslu á lausnir sem taka mið af raunverulegum rekstrarskilyrðum.

Greinina má lesa hér í fullri lengd. HD í Cool Atlantic 2026

Ef þú ert með áskoranir eða vilt ræða þínar þarfir erum við hjá HD til staðar.

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.