HD ehf. hefur hlotið Þekkingarviðurkenningu Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) 2026 fyrir framúrskarandi vegferð í uppbyggingu þekkingardrifinnar iðn- og tækniþjónustu. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrra tekjustrauma, markvissri vaxtarstefnu og uppbyggingu sterkari rekstrargrunns.
Að mati dómnefndar hefur HD verið á afar öflugri og metnaðarfullri vegferð og náð mælanlegum árangri með samþættingu starfsemi, aukinni sérhæfingu og skýrri framtíðarsýn.
Á síðustu fimm árum hefur HD farið í gegnum umfangsmikla umbreytingu þar sem félagið hefur markvisst fjárfest í nýrri þjónustu, sérhæfðri tækniþekkingu og uppbyggingu nýrra þjónustusviða. Sú þróun hefur meðal annars falist í aukinni áherslu á tækni- og greiningarþjónustu, þjónustu við orku- og innviðageirann og sérhæfð verkefni tengd jarðvarmavirkjunum.
Þessi uppbygging hefur skapað nýja og fjölbreyttari tekjustrauma fyrir félagið, sérstaklega utan upprunalegrar kjarnastarfsemi. Á sama tíma hefur þjónustuframboð breikkað, sérhæfing aukist og félagið náð sterkari stöðu á nýjum mörkuðum og í flóknari verkefnum.
HD hefur jafnframt byggt upp sérhæfða þekkingu á sviði jarðvarmavirkjana, rótorviðgerða og hátækniþjónustu sem hefur leitt til verkefna á erlendum mörkuðum, meðal annars í Indónesíu þar sem félagið sinnti eftirliti með viðgerðum á jarðvarmatúrbínum fyrir Star Energy.
„Við erum afar stolt af þessari viðurkenningu. Hún er fyrst og fremst viðurkenning á þeirri þekkingu, metnaði og fagmennsku sem starfsfólk HD hefur byggt upp á síðustu árum. Áhersla okkar hefur verið að þróa fyrirtækið áfram með skýrri framtíðarsýn, aukinni sérhæfingu og sterkari þjónustu við viðskiptavini,“ segir Árni Rafn Gíslason, forstjóri HD.
Á undanförnum árum hefur HD lagt ríka áherslu á samþættingu rekstrar, uppbyggingu sérhæfðrar þekkingar og fjárfestingu í nýrri tækni og innviðum. Sú vegferð hefur styrkt stöðu félagsins sem leiðandi þjónustuaðila á sviði iðn- og tækniþjónustu og skapað ný vaxtartækifæri, meðal annars á sviði hátækniþjónustu, greininga og þjónustu við jarðvarma- og orkuinnviði.
Viðurkenning var afhent af forseta Íslands, við hátíðlega athöfn á vegum FVH þann 19. maí.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands afhendir Árna R. Gíslasyni, forstjóra HD Þekkingarviðurkenningu FVH.
Stoltir fulltrúar HD við afhendingu Þekkingarviðurkenningar FVH 2026.