HD styrkir forystu sína og skerpir áherslur

HD hefur á undanförnu misseri gert markvissar breytingar á forystu fyrirtækisins með ráðningu nýrra stjórnenda. Með þessum skrefum er lögð aukin áhersla á tæknilega forystu, markaðsstarf og áframhaldandi uppbyggingu félagsins, til að styðja við vöxt og enn öflugri þjónustu við íslenskt atvinnulíf.

Á síðasta ári var Stella Björg Kristinsdóttir ráðin markaðsstjóri og í lok ársins tók Valgeir Pétursson við starfi sviðsstjóra nýs tæknisviðs fyrirtækisins. Ráðningarnar eru liður í heildstæðri stefnumótun, þar sem aukin áhersla er lögð á skýrari markaðssýn og markvissari þróun þjónustuframboðs og sérstöðu HD.

Nýtt tæknisvið eflir samlegð og rekstraröryggi

Með ráðningu Valgeirs Péturssonar hefur verið sett á laggirnar nýtt tæknisvið hjá HD, þar sem tæknideild og ástandsgreiningardeild sameinast undir einu öflugu sviði.

Markmiðið er að efla samspil þróunar, hönnunar, vöktunar og ástandsgreininga og skapa skýrara flæði í verkferlum. Áhersla verður lögð á gagnadrifna nálgun, rauntímavöktun og markvissar viðhaldsákvarðanir, með það að leiðarljósi að bæta rekstraröryggi, hagkvæmni og afköst hjá viðskiptavinum í iðnaði, sjávarútvegi og orkugeiranum.

Valgeir er menntaður véltæknifræðingur með víðtæka reynslu af sérhæfðum tæknilausnum. Hann starfaði um árabil hjá Össuri, meðal annars sem forstöðumaður vöruþróunar á spelku- og stuðningsvörum, þar sem hann leiddi alþjóðleg, þverfagleg teymi og tók þátt í þróun markaðsleiðandi lausna.

Nýr markaðsstjóri og skýrari markaðssýn

Með ráðningu Stellu var sett á laggirnar nýtt starf sem heyrir undir forstjóra fyrirtækisins og markar aukna áherslu á markaðsstarf, vörumerkjauppbyggingu og skýrari miðlun á þjónustuframboði og sérstöðu HD.

Stella býr yfir umfangsmikilli reynslu í sölu- og markaðsmálum og hefur gegnt fjölbreyttum stjórnunarstöðum, meðal annars sem markaðsstjóri fiskiðnaðar hjá Marel og sem forstöðumaður sölu-, markaðs- og vöruþróunar hjá Mjólkursamlagi KS.  

Stella er viðskiptafræðingur að mennt og með meistaragráðu í alþjóðlegri markaðssetningu og stjórnun frá CBS. Hún hefur víðtæka reynslu af markaðssetningu á fyrirtækjamarkaði og þekkir vel áskoranir og tækifæri í slíku umhverfi. Í starfi sínu leggur hún áherslu á uppbyggingu vörumerkis HD, markvissa og samræmda miðlun á sérþekkingu félagsins og aukinn stuðning við sölustarf fyrirtækisins.

Áherslur til framtíðar

Árni Rafn Gíslason, forstjóri HD, segir ráðningarnar endurspegla skýra framtíðarsýn félagsins. „Með þessum breytingum erum við að styrkja bæði tæknilega og markaðslega forystu HD. Með ráðningunum höldum við áfram að byggja upp sterkt fagteymi og styðja við framtíðarsýn okkar um gæði, áreiðanleika og öfluga þjónustu við íslenskt atvinnulíf. Samspil tæknilegrar forystu og markvissrar vörumerkjauppbyggingar styrkir stöðu HD á markaðnum og undirbyggir langtímasýn okkar um vöxt og áframhaldandi þróun,“ segir Árni.

HD hefur sterkan grunn og mikla sérþekkingu. Mitt hlutverk er að gera þá styrkleika sýnilega og styðja við áframhaldandi vöxt,“ segir Stella Björg Kristinsdóttir.

„Ég hlakka til að leggja mitt að mörkum við að byggja upp sterka liðsheild og tryggja að sú sérþekking sem starfsfólk HD býr yfir nýtist enn betur“ segir Valgeir Pétursson. 

What are you looking for?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.