HD og Tero sýna hvernig ástandsgreining og viðhaldsstjórnun vinna saman
HD tekur þátt í Lagarlífi í Hörpu þar sem fyrirtækið mun, ásamt Tero, sýna hvernig ástandsgreining, viðhaldsþjónusta og viðhaldsstjórnun geta unnið saman að auknu rekstraröryggi.
Áherslan verður á að sýna hvernig upplýsingar um ástand búnaðar nýtast áfram í viðhaldsferlinu – frá því að frávik greinist þar til gripið er til réttra aðgerða.
HD leggur til sérþekkingu á ástandsgreiningu, viðhaldi og viðgerðum. Tero bætir þar við lausnum fyrir viðhaldsstjórnun þar sem haldið er utan um búnað, viðhaldssögu, verk, varahluti, skjöl og kostnað.
„Ástandsgreining gefur upplýsingar um hvað er að gerast í búnaðinum. Verðmætið verður hins vegar mest þegar þær upplýsingar leiða með skipulögðum hætti til réttra aðgerða. Með því að tengja saman ástandsvöktun, viðhald og viðhaldsstjórnun er hægt að bregðast fyrr við og skipuleggja viðhald betur,“ segir Valgeir Pétursson, sviðsstjóri tæknisviðs HD.
Tero hefur yfir 30 ára reynslu af lausnum fyrir viðhaldsstjórnun og eru kerfi fyrirtækisins meðal annars notuð í sjávarútvegi og fiskeldi.
„Viðhaldsstjórnun snýst ekki bara um að skrá hvað hefur verið gert, heldur að hafa réttar upplýsingar tiltækar þegar ákvarðanir um viðhald eru teknar. Með því að tengja upplýsingar úr ástandsgreiningu betur inn í viðhaldsferlið er hægt að styðja við markvissara og fyrirbyggjandi viðhald,“ segir Friðgeir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Tero.
Markmiðið er að frávik greinist fyrr, viðhaldsþörf verði sýnileg og rétt verkefni fari af stað áður en lítið frávik þróast yfir í bilun eða óvænta stöðvun.
Á Lagarlífi gefst gestum tækifæri til að ræða við sérfræðinga HD og Tero um hvernig þessi nálgun getur nýst í sjávarútvegi og fiskeldi.
Áður en frávik verður að bilun.
Með því að tengja saman ástandsvöktun, viðhald og viðhaldsstjórnun er hægt að bregðast fyrr við og skipuleggja viðhald betur,“ segir Valgeir Pétursson, sviðsstjóri tæknisviðs HD.