Vörur

Vöruúrval félagsins hefur aukist í tímans rás og endurspeglar vel kröfur viðskiptavina um heildarlausnir frá hönnun til gangsetningar á búnaði frá sama þjónustufyrirtæki. Með því er einn aðili ábyrgur fyrir verkefninu í heild sinni. Eftir að búnaður er kominn í rekstur býður HD síðan viðhaldsþjónustu og útvegun varahluta og fylgir þannig vörunni á meðan hún er í rekstri hjá viðskiptavinum.

Birgjar HD er meðal annars frá Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi, Svíþjóð, Ítalíu, Bandaríkjunum og öðrum löndum. Hér fyrir neðan má sjá upptalningu helstu vöruflokka sem HD býður.

HD getur útvegað brúkrana í flestum stærðum og gerðum.
Dælubúnaður gegnir lykilhlutverki í flestum greinum íslensks iðnaðar, allt frá fiskvinnslu og fráveitum yfir í orkuflutning og vatnsveitur. Hjá HD starfa tækni- og iðnaðarmenn með áratugareynslu og yfirgripsmikla þekkingu á hönnun, smíði og þjónustu dælubúnaðar við fjölbreyttar og krefjandi aðstæður. Þegar velja á rétta dælulausn þarf að taka mið af efnasamsetningu og seigju vökvans, hitastigi hans og mögulegum tærandi eiginleikum, auk þess sem flutningsfjarlægð og umfang verkefnis hafa áhrif á valið. HD býður dælur í mörgum stærðum og gerðum, úr fjölbreyttum efnum, sem tryggja að lausnin henti nákvæmlega þeim aðstæðum sem viðskiptavinurinn stendur frammi fyrir hverju sinni. Dælubúnaður frá HD er í daglegri notkun um allt land og er meðal annars notaður til að flytja fiskafurðir, jarðhitavökva, eldsneyti og drykkjarvatn, auk þess að sinna mikilvægum verkefnum í fráveitukerfum og öðrum innviðum sem treysta á áreiðanlega og skilvirka flutningslausn.
HD hefur ávallt haft sterka tengingu við íslenskan sjávarútveg og hefur þjónustað fiskimjölsiðnaðinn með ráðgjöf og stálsmíði ásamt sölu, uppsetningu og viðhaldi búnaðar.Til þess að auka þjónustu við fiskimjölsiðnaðinn höfum við verið í samstarfi við Haarslev sem er leiðandi fyrirtæki í heiminum með búnað til fisk- og kjötmjöls framleiðslu. HD getur í samstarfi við Haarslev boðið búnað til mjölframleiðslu, hvort sem er í skip eða hefðbundna verksmiðju í landi. Við bjóðum hvort sem er heildar lausn í skip eða á landi, asamt því að bjóða uppá einstaka tæki. Sveigjanleiki og öflugt framboð af hágæða vörum eru leiðarljós HD, þjónusta til okkar viðskiptavina.
HD flytur inn og selur Rafmagnslokadrif og fjölbreytt úrvar lokabúnaðar fyrir íslenskan iðnað. Hér fyrir neðan má sjá eilítið brot af úrvalinu. vinsamlega hafið samband við tæknisöluteymið okkar til að fræðast betur um val á búnaði fyrir þína starfsemi.
Oft myndast span spenna í rótor mótora og rafala, ef spennan verður það mikil að hún fer að fara í gegnum legur veldur það bruna og skemmd á legum. Með því að nota AEGIS mótorvarnir losna allar óæskilegar spennur úr mótornum og verja þar með legur fyrir skemmdum af völdum of mikillar rafhleðslu.
Rafmótorar frá þekktum framleiðendum
HD býður uppá hönnun, ráðgjöf, tækjabúnað, uppsetningu og viðhald á tækjabúnaði til framleiðslu á súrefni. Tæknin sem er notuð er þrýstingssveiflu ísog eða pressure swing adsorption, (PSA).
HD hefur útvegað viðskiptavinum sínum hágæða varahluti í flestan búnað alla tíð. Hvort sem það eru varahlutir í búnað sem við útvegum eða annan þá þjónustum við allan búnað og finnum lausnir með okkar viðskiptavinum. Oft þegar varahluturinn er ekki til, þrívíddar skannað, efnagreint og notast við afturvirka hönnun til að sérsmíða varahluti.
aegis sq
Haarslev
Calpeda
SPP vörumerki heimasida
ge sq
Aturia vörumerki heimasida
Auma
NOV Mono vörumerki heimasida
TEC vörumerki heimasida
Kelvion vörumerki heimasida
Twave Logo SQ
Askalon
ADASH
spaggi sq
weldo sq
Ydra logo sq
Oxymat vörumerki heimasida
Artesis heimasida
flow sq
FrankeFilter
Dreno vörumerki heimasida
BakerHuges vörumerki heimasida
Screenshot 2025-02-28 091800
Screenshot 2025-02-28 092717

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.