Customised machine parts

HD hefur byggt upp tækniþekkingu og státar af sérhæfðum búnaði til sérsmíði vélarhluta. Við notum meðal annars þrívíddarskanna til nákvæmrar uppmælingar á eldri vélahlutum sem eru skemmdir eða þarfnast endurnýjunar. Í mörgum tilfellum velja viðskiptavinir að láta smíða nýjan vélahlut úr slitsterkara efni en upprunalegi hlutinn var gerður úr – sem getur aukið slitþol og lengt líftíma búnaðarins verulega.

Á starfsstöð HD í Kópavogi er fullbúið renniverkstæði með sérhæfðu starfsfólki og nútímalegum búnaði til véla- og íhlutasmíða. Við nýtum okkur einnig traust net reyndra erlendra framleiðenda, sem tryggir bæði hagstæð verð og stuttan afhendingartíma. Ef þess er óskað, er unnt að fá efnisvottorð með vélarhlutum.

 

What are you looking for?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.