Á dögunum tók HD á móti hópi nema frá Akureyri, sem stunda nám í orku- og iðnaðartæknifræði við Háskólann í Reykjavík, í starfsstöð fyrirtækisins í Mosfellsbæ. Markmið heimsóknarinnar var að kynna sér starfsemi HD í orkugeiranum, fá innsýn í verkefni fyrirtækisins og ræða framtíðartækifæri innan greinarinnar.
Gestunum var vel tekið og fengu þeir góða kynningu á fyrirtækinu og hlutverki HD í íslenskum iðnaði. Nemarnir fengu jafnframt innsýn í rótorviðgerðir og ástandsgreiningar þar sem farið var yfir verklag, tæknilausnir og mikilvægi nákvæmrar greiningar fyrir rekstraröryggi og endingu búnaðar.
Að kynningu lokinni var gestunum boðið upp á hádegisverð þar sem gott tækifæri gafst til óformlegs samtals um námið, iðnaðinn og þau fjölmörgu tækifæri sem felast í orku- og tæknigeiranum á komandi árum.
HD leggur ríka áherslu á gott samstarf við menntastofnanir og telur mikilvægt að veita nemum raunhæfa innsýn í störf greinarinnar – enda liggur framtíð iðnaðarins í öflugri þekkingu, nýsköpun og næstu kynslóð sérfræðinga.
Elín Hlíf Helgadóttir, framkvæmdastjóri mannauðs: „HD leggur ríka áherslu á gott samstarf við menntastofnanir og telur mikilvægt að veita nemum raunhæfa innsýn í störf greinarinnar.“