Árið 2025 markaði mikilvæg tímamót í sögu HD ehf., en þá voru liðin 30 ár síðan fyrirtækið setti niður sína fyrstu djúpdælu. Frá þeim tíma hefur HD byggt upp reynslu og einstaka þekkingu á hönnun, smíði, niðursetningu, gangsetningu og viðhaldi djúpdæla fyrir jarðhitakerfi – bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi.
Á síðustu þremur áratugum hefur HD komið að hönnun, smíði og rekstri á yfir 130 djúpdælum á Íslandi, sem flestar eru enn í stöðugum rekstri. Dælurnar gegna lykilhlutverki í íslenskum jarðhitakerfum og eru burðarásar í hitaveitum, orkuframleiðslu og afhendingaröryggi.
Samhliða verkefnum á Íslandi hefur HD einnig byggt upp sterka stöðu á alþjóðavettvangi, meðal annars í Rúmeníu, Slóvakíu, Tyrklandi, Frakklandi, Ungverjalandi og Kína. Verkefnin hafa falist í bæði stökum uppsetningum á djúpdælum sem og heildarlausnum fyrir jarðhitakerfi og hitaveitur. Í sumum tilfellum hefur niðursetning dælna náð allt að 350 metra dýpi og rekstur farið fram við hitastig allt að 170°C.
„Reynslan sem við höfum byggt upp á síðustu 30 árum er ekki tilviljun. Hún verður til í rekstri, við raunverulegar aðstæður, þar sem kröfur um öryggi, endingu og áreiðanleika eru alltaf í forgrunni,“ segir Lýður Skúlason, sviðsstjóri orkusviðs HD.
Að sögn fyrirtækisins er 30 ára reynslan ekki aðeins áfangi í sögunni, heldur grunnur að áframhaldandi þróun og nýsköpun í djúpdælukerfum og jarðhitalausnum til framtíðar.
Lýður Skúlason, sviðsstjóri orkusviðs HD: „Reynslan sem við höfum byggt upp á síðustu 30 árum er ekki tilviljun.“
Uppsetning öxuldælu
Samantekt - djúpdælukerfi HD:
- Reynsla: 30 ár í hönnun, smíði og rekstri djúpdælukerfa
- Fyrsta djúpdæla: Sett niður árið 1995
- Djúpdælur á Íslandi: Um 130 dælur í rekstri
- Notkun: Jarðhitakerfi, hitaveitur og orkuframleiðsla
- Sérþekking: Hönnun búnaðar að jarðhitaaðstæðum, gangsetning, viðhald og afkastahækkun
- Tækni: Öxuldælur og sambyggðar djúpdælur
- Dýpt niðursetningar: Allt að 350 metrar
- Rekstrarhitastig: Allt að 170°C
- Helstu erlend verkefni: Rúmenía, Slóvakía, Tyrkland, Frakkland, Ungverjaland og Kína