Kynningarmyndband um fyrirbyggjandi viðhald:
HD býður öflugar og sérsniðnar lausnir til ástandsgreiningar og vöktunar á vélbúnaði og mannvirkjum með það að markmiði að tryggja rekstraröryggi, lengja líftíma búnaðar og lágmarka óvæntar truflanir.
Þróun í gagnaöflun og rauntímaúrvinnslu (IoT) gerir okkur kleift að fylgjast náið með ástandi vélasamstæða og grípa til aðgerða áður en bilun á sér stað. Með notkun háþróaðrar tækni, gervigreindar og gagnadrifinnar ráðgjafar greinum við frávik snemma og styðjum við markvissar viðhaldsákvarðanir. Reglubundnar mælingar og sívöktun gera okkur kleift að forgangsraða aðgerðum og skila skýrum, aðgerðarhæfum niðurstöðum sem veita betri yfirsýn og öruggari rekstur.
Frekari greiningar geta verið sérhæfðar og ná meðal annars yfir; titringsgreiningu, hitamyndun, hátíðnigreiningu, 3D skönnun iðnaðarrýma, laserafréttingu, efnisgreiningar, rótargreiningar og faglegt suðueftirlit. Lausnirnar eru sveigjanlegar og aðlagaðar að þörfum hvers verkefnis, hvort sem um er að ræða tímabundna vöktun eða samþættingu við innra viðhaldskerfi fyrirtækja. Sjá einnig nánar um skaðlausar prófanir (NDT) á suðum, málmum og burðareiningum.
HD veitir viðskiptavinum aðgang að víðtækri reynslu, sérþekkingu og nútímalegri tækni sem styður öruggan, hagkvæman og gagnadrifinn rekstur.
Contact:
Gísli Arnar Guðmundsson
gisli@hd.is
S: 660 3610
Hér eftir eru talin upp algengar bilanir í vélbúnaði:
Titringsmælingar eru ein skilvirkasta leiðin til að greina ástand vélbúnaðar. Gögn úr mælum eru greind með hugbúnaði þar sem tíðnimynstur eru borin saman og metið hvort frávik bendi til bilana, til dæmis í legum eða öxlum.
Með reglulegum mælingum eða sívöktun er hægt að bregðast við áður en bilun veldur stöðvun eða tjóni.
HD býður upp á bæði reglubundnar mælingar og nettengdan sívöktunarbúnað. Starfsmenn HD eru þjálfaðir samkvæmt ISO 18436-3 í Vibration Analysis.

Kynningarmyndband um fyrirbyggjandi viðhald:
HD býður upp á sívöktun með IoT- og LoRa X2-lausnum, þar sem nemar safna gögnum í rauntíma, til dæmis um titring og hitastig. Einnig er hægt að mæla önnur gildi, svo sem straumtöku, raka, þrýsting og fleira. Gögnin eru aðgengileg bæði í vafra og í snjalltækjum og sýna jafnt núverandi stöðu sem sögu mælinga frá því búnaðurinn var settur upp.
Að lokum er hægt að flytja gögnin yfir í gervigreindarforrit þar sem fram fer ítarleg og nákvæm greining, ásamt reglubundinni skýrslugerð. Það veitir eigendum fyrirtækja betri yfirsýn og hugarró.
Sívöktun bætir yfirsýn, viðbrögð og dregur úr líkum á óvæntum bilunum.
Kynningarmyndband um el-Watch:

Sjá einnig frekari kynningu á mismunandi lausnum el-Watch á Youtube.
Kynningarmyndbönd um TWave:
Airborne Ultrasound er notað til að nema háa tíðni sem gefur vísbendingu um fyrstu merki bilana, sérstaklega í legum.
Aðferðin nýtist einnig til að greina loft- og vökvaleka, t.d. í háværum vélasölum og frárennsliskerfum vatnsaflsvirkjana.
Starfsmenn HD eru þjálfaðir í Airborne Ultrasound, Level 1.
Myndband: Afhverju virkar hátíðni hlustun vel?
HD býður upp á ástandsgreiningu með búnaði sem greinir rafmerki frá mótorum og rafölum. Aðferðin byggir á því að fylgjast með raforkunotkun í rauntíma og greina frávik í hegðun án þess að þurfa hefðbundnar titringsmælingar eða viðveru starfsfólks.
Kerfið lærir á virkni vélbúnaðarins og nemur sjálfkrafa ef afbrigði koma fram, svo sem ójafnvægi, misstillingar eða slit. Það getur bent nákvæmlega á hvar frávik eiga sér stað og hvað þarf að skoða nánar.
Með þessari aðferð er einnig hægt að greina orkusóun vegna bilana – til dæmis getur ójafnvægi leitt til aukinnar orkunotkunar og hærri rekstrarkostnaðar.
Kynning á Artesis e-MCM ástandsvöktunarkerfi
Sjá frekari kynningu á mismunandi lausnum Artesis á Youtube.
Með hitamyndavél má greina geislun frá yfirborði íhluta og birta hana í myndrænni framsetningu sem veitir skýra yfirsýn yfir möguleg frávik. Aðferðin nýtist sérstaklega vel til að greina óeðlilega hitamyndun í rafbúnaði, vélasamstæðum og tengingum.
Mikilvægt er þó að hafa í huga að hitamyndir sýna eingöngu geislun frá yfirborði – til dæmis er ekki hægt að mynda rafbúnað í gegnum gler, þar sem aðeins sést geislunin frá glerinu sjálfu.
Notagildi hitamyndavéla er víðtækt. Hitamyndun veitir góða innsýn í ástand mótortenginga, rofa, tengiskápa og annarra rafíhluta.
Kynningarmyndband sýnir dæmi um bilanagreiningu með hitamyndavélum.