HD lauk uppbyggingu hátækniverkefnis á Húsavík á mettíma

HD hefur lokið uppbyggingu nýrrar tilraunaverksmiðju kanadíska tæknifyrirtækisins Syntholene Energy á Húsavík, þar sem þróuð er ný kynslóð tækni til framleiðslu vetnis og kolefnishlutlauss flugeldsneytis með nýtingu jarðhita.

HD var valið sem aðalverktaki verkefnisins og bar ábyrgð á heildarsamhæfingu framkvæmda, verkefnastjórnun, samskiptum við undirverktaka og yfirvöld, öryggis- og umhverfismálum auk undirbúnings fyrir gangsetningu stöðvarinnar.

Verkefnið fól í sér uppsetningu á sérhæfðum tilraunabúnaði sem sameinar jarðhitakerfi, varmaskipta, háhita-rafgreiningu og vetnistækni í samþættri lausn. Markmið stöðvarinnar er að sannreyna hvort nýta megi jarðhita til að draga úr orkuþörf og framleiðslukostnaði vetnis og þar með kolefnishlutlauss flugeldsneytis.

Uppbygging stöðvarinnar tók aðeins 69 daga frá útgáfu byggingarleyfis til gangsetningar og lauk verkefninu því um sex mánuðum á undan upphaflegri áætlun. Starfsemi stöðvarinnar er nú hafin og á næstu mánuðum munu fara fram umfangsmiklar prófanir sem eiga að staðfesta tæknilega og fjárhagslega hagkvæmni lausnarinnar.

„Við erum afar stolt af því að hafa verið valin til samstarfs í þessu metnaðarfulla verkefni og ekki síður af því að sjá hversu vel og hratt það gekk fyrir sig,“ segir Árni Rafn Gíslason, forstjóri HD.

„Verkefnið krafðist náinnar samvinnu sérfræðinga úr mörgum greinum og mikillar samhæfingar á milli hönnuða, birgja, verktaka og stjórnvalda. Hér nýtist sú reynsla sem HD hefur byggt upp í flóknum iðnaðar- og orkuverkefnum þar sem kröfur um öryggi, gæði og framkvæmdahraða eru miklar.“

Tilraunaverksmiðjan er staðsett við Húsavíkurbæjarstöð, þar sem fyrir eru innviðir sem tengjast jarðhitanýtingu. Verkefnið fellur vel að styrkleikum HD á sviði iðnaðarþjónustu, tæknilausna og viðhalds mikilvægra innviða og styður við þá framtíðarsýn fyrirtækisins að taka virkan þátt í orkuskiptum og uppbyggingu nýrra atvinnugreina á Íslandi.

„Þótt um tilraunaverkefni sé að ræða er tæknin sem hér er verið að þróa hugsanlegur grunnur að framtíðarframleiðslu kolefnishlutlauss eldsneytis á stærri skala. Það er ánægjulegt að sjá íslenska verkþekkingu og reynslu gegna lykilhlutverki í slíku verkefni,“ segir Árni.

Verkefnið undirstrikar jafnframt þá sérþekkingu sem byggst hefur upp hjá HD á sviði orkuiðnaðar, tæknilegra innviða og framkvæmdastjórnunar og sýnir hvernig íslensk fyrirtæki geta tekið þátt í þróun nýrra lausna á alþjóðlegum orku- og loftslagsáskorunum.

Fulltrúar HD á verkstað; Ögri Harðarson, tæknimaður og Friðrik Karlsson sviðsstjóri HD á Akureyri, ásamt Eíríki Bragasyni verkefnastjóra hjá Syntholene Energy.

Frá vígslu tilraunaverksmiðju Syntholene, þann 22. Júní 2026

Frá starfsstöð Syntholene á Húsavík

Myndskeið: Tilraunaverksmiðja Syntholene Energy á Húsavík (2,5 mín)

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.