Fráveitulausnir sem mæta þörfum framtíðar

HD Iðn- og tækniþjónusta kynnir nýtt þjónustuframboð á sviði fráveitulausna og skólphreinsunar. Með PMT Water Solutions (Veolia) sem valinn samstarfsaðila býður HD sveitarfélögum, veitum og iðnfyrirtækjum aðgang að alþjóðlegri sérþekkingu og fjölbreyttum hreinsilausnum, samhliða öflugri innlendri tækniþjónustu.

Auknar kröfur til skólphreinsunar og umhverfisverndar kalla á markvissan undirbúning og uppbyggingu í fráveitumálum víða um land. Mikilvægt er að velja lausnir sem henta íslenskum aðstæðum, taka mið af raunverulegri hreinsunarþörf og bjóða upp á sveigjanleika til framtíðar.

Fjölbreyttar lausnir fyrir ólíkar þarfir

Í boði eru fjölbreyttar lausnir, meðal annars nýjar hreinsistöðvar, uppfærsla núverandi hreinsikerfa, einingabundnar hreinsistöðvar, dælustöðvar og sérhæfður búnaður til hreinsunar iðnaðarskólps.

staðlaðar, einingabundnar hreinsistöðvar eru sérstaklega áhugaverður valkostur fyrir minni og meðalstór fráveitukerfi. Hver eining er sjálfstæð og hægt er að bæta við einingum eftir því sem þörf fyrir aukna afkastagetu skapast.

Fyrirferðarlítil hönnun og tilbúnar einingar draga úr umfangi mannvirkjaframkvæmda og einfalda uppsetningu. Þannig getur bæði uppbygging og fjárfesting farið fram í áföngum, í takt við raunverulega þörf hverju sinni.

Alþjóðleg sérþekking – íslensk framkvæmd og þjónusta

PMT Water Solutions (Veolia) býr yfir sérhæfðri þekkingu og alþjóðlegri reynslu á sviði vatns- og skólphreinsunar, meðal annars í líffræðilegri hreinsun og einingabundnum hreinsilausnum.

HD býr yfir áratugalangri reynslu af vélbúnaði, tæknilegri þjónustu og framkvæmd iðnaðarverkefna hér á landi. Þjónusta HD nær til búnaðarsölu, verkefnastjórnunar, smíði, uppsetningar og gangsetningar, auk ástandsvöktunar, viðhalds og áframhaldandi rekstrarstuðnings.

Viðskiptavinir hafa þannig aðgang að staðbundnum þjónustuaðila sem getur fylgt verkefnum eftir frá fyrstu hugmynd og út líftíma búnaðarins. Nánari upplýsingar um hreinsitækni og tæknilausnir má finna á vefsíðu PMT Water Solutions.

Hvort sem verið er að stíga fyrstu skrefin í uppbyggingu fráveitu, skoða tæknilega valkosti eða undirbúa framkvæmdir er HD reiðubúið að aðstoða.

Sjá nánari kynningu á þjónustu HD hér, eða hafðu sambandi við:

Pálmar Svein Ólafsson, sölumann fráveitulausna

palmars@hd.is | Sími 560 3641

Verksmiðjusamsett hreinsieining, tilbúin til uppsetningar og tengingar á staðnum.
Dæmi um hreinsistöð fyrir fráveitu

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.