Fráveitur

Hreinsun skólps á Íslandi er enn skammt á veg komin. Flest sveitarfélög reka eingöngu grófhreinsun eða enga hreinsun, á sama tíma og kröfur til hreinsunar, mælinga og skýrslugjafar eru að aukast.

HD aðstoðar sveitarfélög, veitur og fyrirtæki við að finna og innleiða réttar lausnir í fráveitu og hreinsun í samstarfi við Veolia Water Technologies. Þjónustan nær frá stöðumati og lausnavali til uppsetningar, vöktunar og þjónustu allan líftíma búnaðarins.

Nánari upplýsingar veita:

Búnaðarsala sala@hd.is Sími: 560 3630

Pálmar Sveinn Ólafsson, sölumaður fráveitur
palmars@hd.is   Sími: 560 3641

Staðan á Íslandi

Fram undan er veruleg uppbygging í skólphreinsun á Íslandi. Staðan í stærri þéttbýlum sýnir skýrt þörfina fyrir markvissa uppbyggingu og lausnir sem hægt er að innleiða í áföngum.

Tölurnar sýna glöggt hversu langt er í land. 

Nýjar kröfur

Auknar kröfur kalla á markvissari hreinsun

Kröfur til fráveitna um hreinsun, vöktun og gagnaskil eru að aukast.  Reglugerð nr. 1450/2025 skerpir á kröfum um hreinsun, vöktun og gagnaskil og endurskoðuð skólptilskipun ESB (2024/3019) gerir ráð fyrir enn frekari hreinsun á næstu árum.

Tveggja þrepa hreinsun er meginreglan, en rétt útfærsla ræðst af stærð kerfis, álagi og viðtaka. Jafnframt aukast kröfur um skráningu yfirfalla og upplýsingar um rennsli, hreinsun og seyru.

Þetta á ekki aðeins við um stærri fráveitur. Minni sveitarfélög þurfa einnig að meta hvaða hreinsun er viðeigandi og hvernig best er að byggja hana upp til framtíðar.

Hreinsun í áföngum

Hreinsunin byggist upp í þrepum þar sem hvert skref fjarlægir meiri óhreinindi og skilar hreinna vatni.

Þannig má byggja kerfið upp í áföngum eftir þörfum og fjárfesta þar sem mestur ávinningur fæst hverju sinni.

Samstarf HD við Veolia

Veolia Water Technologies er leiðandi á heimsvísu í vatns- og fráveitulausnum. Með samstarfinu fær íslenskur markaður aðgang að alþjóðlegri tækni og sérþekkingu Veolia, studdri af staðbundinni framkvæmd og þjónustu HD.

Veolia leggur til ferlahönnun, alþjóðlega reynslu og sannreyndar lausnir fyrir líffræðilega og ítarlegri hreinsun – meðal annars AnoxKaldnes™ MBBR/IFAS, MBR og fjarlægingu næringarefna.

HD leggur til þekkingu á íslenskum aðstæðum, verkefnastjórnun, smíði, uppsetningu, gangsetningu, ástandsvöktun, viðhald og varahluti – og samband við viðskiptavininn allan líftímann

.

ECOSIM™ hreinsistöð í gámi

ECOSIM™ frá Veolia er fyrirferðarlítil hreinsistöð í gámaeiningu, hönnuð fyrir skilvirka líffræðilega skólphreinsun.

Lausnin hentar minni og meðalstórum fráveitukerfum, dregur úr þörf fyrir umfangsmiklar byggingarframkvæmdir og gerir kleift að byggja hreinsunina upp í takt við þarfir og framtíðarkröfur.

   

Sveitarfélög og veitur
Nýjar hreinsistöðvar, uppfærsla eldri kerfa, dælustöðvar, yfirföll og áætlanir um áfangaskipta uppbyggingu.

Iðnaður og matvælavinnsla
Forhreinsun og hreinsun iðnaðarskólps, t.d. í sjávarútvegi, fiskeldi, landeldi og matvælaiðnaði.
 

Ráðgjafar og hönnuðir
Tæknileg gögn, lausnaval, afkastatölur og aðkoma að hönnunarforsendum snemma í ferlinu.

Helstu kosti ECOSIM™ :

Helstu kostir ECOSIM™

ECOSIM™ frá Veolia ersameinar skilvirka líffræðilega hreinsun, einfalda uppsetningu og sveigjanleika í fyrirferðarlítilli lausn.

Kerfið dregur úr þörf fyrir umfangsmiklar framkvæmdir og auðveldar að byggja hreinsun upp í takt við þarfir og framtíðarkröfur.

Hvað HD gerir

HD hjálpar sveitarfélögum og veitum að finna réttu leiðina að bættri skólphreinsun. HD metur aðstæður og þarfir, velur hentuga lausn og annast búnað, uppsetningu og þjónustu.

Með lausnum frá Veolia, þar á meðal ECOSIM™, getur HD boðið sveigjanlega leið til að byggja hreinsun upp í áföngum og mæta auknum kröfum án þess að ráðast strax í umfangsmiklar framkvæmdir.

Svona vinnum við:

Hver er staðan hjá ykkur?

Hvort sem þið eruð að undirbúa nýja hreinsistöð, uppfæra eldra kerfi eða viljið bara fá betri yfirsýn, þá er stutt samtal við sérfræðinga HD góður staður til að byrja – án skuldbindinga..

Hafðu samband:

Pálmar Sveinn Ólafsson (sölumaður – fráveitur)
palmars@hd.is · 560 3641

Búnaðarsala:
 

Algengar spurningar

  • Hvað eru persónueiningar (pe.)?

Persónueining er mælikvarði á lífrænt álag sem samsvarar álagi frá einum einstaklingi á dag. Álag er metið í persónueiningum en ekki eingöngu út frá íbúafjölda, því atvinnustarfsemi og ferðaþjónusta geta aukið álagið verulega. 

  • Við erum lítið sveitarfélag – gilda kröfurnar um okkur?

Já. Skólp frá minni byggðum þarf einnig viðeigandi hreinsun. Heilbrigðisnefnd metur hvað telst viðeigandi með hliðsjón af viðtaka og álagi. Áfangaskipt lausn, t.d. hreinsistöð í gámi, getur hentað vel.

  • Við erum með síubúnað í dag. Hvað þurfum við að gera?

Starfandi fráveitur sem nota síubúnað samkvæmt eldri reglugerð geta við ákveðnar aðstæður haldið notkun hans áfram til 31. desember 2027. Gott er að nýta tímann til að meta stöðuna, afla gagna og undirbúa næsta áfanga.

  • Getum við byrjað smátt?

Já, og það er oft skynsamlegasta leiðin. Byrjað er á forhreinsun og bætt við líffræðilegri hreinsun og seyrumeðhöndlun í áföngum. Mikilvægt er að velja lausnir sem hægt er að stækka. 

  • Hvað kostar stöðumat?

Það fer eftir umfangi og þeim gögnum sem liggja fyrir. Hafðu samband og við förum yfir málið með þér og gerum tillögu að umfangi.

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.