Þjónustusamningar

Fyrirbyggjandi þjónusta. Fyrirsjáanlegur rekstur.

Með þjónustusamningi hjá HD tryggir þú reglubundið eftirlit, markvisst viðhald og skýra ábyrgð. Markmiðið er að draga úr óvæntum bilunum, lágmarka niðritíma og lengja líftíma búnaðar.

Þjónustusamningar geta náð til einstakra véla, kerfa eða heilla rekstrareininga. Samningar eru byggðir á raunverulegum þörfum, áhættumati og viðhaldsstefnu hvers og eins viðskiptavinar. Við setjum þá upp í nánu samstarfi við þig og aðlögum þjónustuna að rekstri, markmiðum og kröfum.

Með reglubundnu eftirliti og sívöktun fá rekstraraðilar áreiðanlegar upplýsingar um raunverulegt ástand búnaðar. Þær upplýsingar skapa grundvöll fyrir upplýstar ákvarðanir um viðhald áður en kemur til kostnaðarsams niðritíma, framleiðslutaps eða eignatjóns.

Hvað felst í þjónustusamningi?

  • Reglubundnar skoðanir og ástandsgreiningar
  • Fyrirbyggjandi viðhald samkvæmt áætlun
  • Sívöktun og greining gagna þar sem við á
  • Forgangur í útköllum og skilgreind viðbragðstími
  • Skýr skýrslugjöf og ráðleggingar um næstu skref
  • Yfirsýn yfir kostnað og viðhaldsþörf

Þjónustusamningur með HD er ekki eingöngu viðhaldssamningur – hann er samstarf um stöðugan, öruggan og hagkvæman rekstur.

 

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.