Skaðlausar prófanir (NDT)

Kröfur um gæði og öryggi hafa aukist verulega á undanförnum árum. Samhliða breyttri löggjöf og auknum kröfum um óháð eftirlit, hafa sérhæfðir þjónustuaðilar tekið stærra hlutverk í mati á ástandi búnaðar og mannvirkja.

Skaðlausar prófanir (NDT/Non-Destructive Testing) gera kleift að greina galla og meta ástand efna án þess að raska virkni þeirra eða valda skemmdum. HD hefur byggt upp trausta sérhæfingu á þessu sviði og framkvæmir prófanir á meðal annars skipum, olíutönkum og stálmannvirkjum með aðferðum á borð við hljóðbylgju- og þykktarmælingar.

HD vinnur samkvæmt alþjóðlega staðlinum EN ISO 9712, með áherslu á fagleg vinnubrögð, vottaðan búnað og rekjanleika gagna.

Tengiliður
Gísli Arnar Guðmundsson
astandsgreiningar@hd.is
M: 844 0313

Sprunguleitun

Segulagnaprófun (Magnetic-Particles Testings) er vel þekkt aðferð innan skaðlausra prófanna enda afar næm. Hún tekur sérstaklega vel  á yfirborðssprungum en getur einnig ná c.a. 1-2mm niður í efnið og því greint sprungur undir yfirborði efnisins. HD á allt til segulagnaprófunar og hjá fyrirtækinu leitumst við að þeir aðilar sem vinna við mælingar séu með þjálfun og skírteini í þeirri aðferð sem notuð er.

Litaprófun (Penetrant Testings) er þekkt aðferð til sprunguleitunar.  Mikið notuð í flugvélaiðnaðinum enda fljótleg en árangursrík. Litaprófið er prófunaraðferð sem ekki eyðileggur yfirborð efnisins. Galdurinn að þessu ferli er háræðaverkun efnisins og framköllunarinnar. Skarpir litir koma fram við framköllun. Prófunin er aðallega notað fyrir málma. Ef það hentar getur litarefnaprófun einnig sýnt galla í plasti og keramik. Það fer eftir yfirborði efnisins hvernig litapróf skal tekið. Engin ein litaprófunaraðferð dugar á alla fleti. HD á allt til litaprófunar og hjá fyrirtækinu leitumst við að þeir aðilar sem vinna við mælingar séu með þjálfun og skírteini í þeirri aðferð sem notuð er.

Hljóðbylgjuprófun (Ultrasound Inspection) er ein algengasta aðferð skaðlausra prófana sökum þess hve fljótleg og ódýr hún er.  Algengasta aðferðin innan UT eru þykktarmælingarnar en einnig er hún mikið notuð við að ástandsskoða rafsuður. Sprunguleit á boltum eða öxlum með UT er einnig afar öflug aðferð ef finna skal sprungur undir yfirborðinu. 

HD býður upp á allan búnað til hljóðbylgjuprófunar og leggur áherslu á að þeir sem sinna mælingum hafi viðeigandi þjálfun og vottun í þeirri aðferð sem notuð er.

Málmefnagreining

HD býr yfir háþróuðum tækjabúnaði (LIBS málmgreiningartæki) sem greinir málma á borð við;
kolefni (C), ál (Al), kísil (Si), títan (Ti), vandín (V), króm (Cr), mangan (Mn), kóbolt (Co), nikkel (Ni), kopar (Cu), níbóbín (Nb), mólýbden (Mo), volfram (W).

Málmefnagreining nýtist m.a. til að:

  • Staðfesta málmtegundir fyrir
    bakvirka hönnun og viðhald
  • Sannreyna efnisvottorð málma
  • Sannreyna málmtegundir frá birgjum við gæðaeftirlit með aðföngum
  • Velja rétta suðutækni og efni

Þykktarmælingar

HD veitir vottaða þjónustu í þykktarmælingum fyrir skip, flotbúnað, olíugeyma og önnur stálmannvirki þar sem skaðlaus prófun (NDT) er nauðsynleg. Mælingarnar eru framkvæmdar af réttindavottuðu starfsfólki samkvæmt ströngum kröfum um gæði, öryggi og rekjanleika.

Þykktarmælingar gefa skýra mynd af tæringu og sliti í stálhlutum og eru mikilvægur þáttur í reglubundnu öryggiseftirliti. Niðurstöðurnar styðja við lögbundnar skoðanir, kröfur tryggingafélaga og markvissa viðhaldsáætlun. Með reglulegu eftirliti er hægt að greina frávik tímanlega, draga úr áhættu, lágmarka óvæntan niðritíma og lengja líftíma burðarvirkja.

HD vinnur náið með tæknistjórum, útgerðum og slippum við skipulagningu mælinga. Þannig er hægt að framkvæma mælingar á hagkvæman og skilvirkan hátt, oft samhliða slipptöku, með lágmarks áhrifum á rekstur.

Lögbundin skoðun

Fyrir tæknistjóra útgerða

Þykktarmæling skipa getur verið umfangsmikið verkefni (oft 1,5–2 vikur) og er mikilvægt að undirbúa það vel. HD aðstoðar við skipulagningu og framkvæmd þannig að:

    • slipptaka nýtist sem best
    • tími og kostnaður haldist innan áætlunar
    • kröfur eftirlitsaðila séu uppfylltar

Í hverju felst þjónustan?

  • Undirbúningur og skipulag: Samráð við tæknistjóra um umfang, svæði og tímaáætlun – oft samhliða slipp.
  • Framkvæmd mælinga: Mælingar eru framkvæmdar af starfsmönnum með viðurkennda vottun (t.d. ISO 9712 – UT Level 2).
  • Skýrslugerð: Skýr og rekjanleg mæligögn með samanburði við fyrri mælingar og mati á tæringu eða efnisrýrnun.
  • Ráðgjöf: Tillögur að viðgerðum, styrkingu eða áframhaldandi vöktun.

Vottanir:

3D skönnun

HD býður upp á þrívíddarskönnun með hátækniskanna sem mælir allt að 1,3 milljón mælipunkta á sekúndu með nákvæmni upp á ±0,02 mm. Skanninn hentar sérstaklega vel til að skanna óreglulega íhluti á stuttum tíma og veitir mjög nákvæmar niðurstöður

Út frá skönnunargögnum er hægt að búa til heilstætt þrívítt líkan (solid model) sem nýtist í teikningasett, hönnunarskjölum eða til framleiðslu á íhlutum. Skanninn getur einnig borið saman tvo hluti og greint nákvæman mun á milli þeirra, sem er t.d. gagnlegt við gæðaeftirlit, endurhönnun eða viðgerðir. 

Suðueftirlit

Við framkvæmd rafsuðu skiptir öllu máli að tryggja gæði og öryggi í gegnum allt ferlið – frá undirbúningi til lokaúttektar. Það felur í sér að fylgt sé staðfestu suðuferli og viðeigandi stöðlum, réttur búnaður sé notaður og að teikningar, efni og skjöl séu í samræmi við kröfur.

Skoðun eftir að suðu lýkur er mikilvæg – en ekki nóg. Skoðun áður en suða hefst og meðan á henni stendur getur skipt sköpum fyrir gæði suðunnar. Með ítarlegum gátlista má tryggja að öll atriði séu til staðar áður en loginn kviknar – og að vinnuferlið sjálft uppfylli ströngustu kröfur.

Flest þessi atriði falla undir ábyrgð suðueftirlitsmanns, en allt teymið þarf að vera meðvitað um ferlið. Hjá HD sjáum við til þess að allar skoðanir séu framkvæmdar af aðilum sem hafa viðurkennda þjálfun og gild vottorð fyrir viðkomandi prófunaraðferð, samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

HD starfar samkvæmt tveimur lykilvottunum sem tryggja öryggi og fagmennsku í allri rafsuðuvinnu: ISO 9001 fyrir gæðastjórnun og ISO 3834 sem nær sérstaklega til suðuferla, en HD er eitt af fáum fyrirtækjum á Íslandi með alþjóðlega suðuvottun. ISO 3834 nær yfir allt suðuferlið, frá undirbúningi og efnisvali til framkvæmdar, eftirlits og afhentrar vöru. Gæðastjórnunin tryggir rekjanleika, stöðugt eftirlit og faglega úttekt í öllum verkefnum.

Nánar um suðuvottun undir flipa um málmsuðu.

Þjónustusamningar

Ráðgjöf og þarfagreining

Metið er hvaða búnaður er krítískur í rekstri og hvaða aðferð hentar best hverju sinni – titringur, hitamyndun, rafgreining, hátíðnihlustun eða sambland aðferða.

Uppsetning og samþætting

Skynjarar og mælibúnaður eru settir upp og tengdir við greiningarkerfi eða viðhaldskerfi fyrirtækisins (CMMS / SCADA / API tengingar þar sem við á).

Vöktun og greining

Gögn eru greind reglulega, þróun fylgt eftir (trend analysis) og frávik metin með sérhæfðum hugbúnaði og gervigreind þar sem við á.

Skýrslugerð og aðgerðaáætlanir

Viðskiptavinur fær skýrar og aðgerðarhæfar skýrslur með tillögum að viðhaldi og forgangsröðun.

Þjálfun og kennsla

Boðið er upp á þjálfun starfsfólks í notkun á búnaði til að tryggja sem bestu niðurstöður.

Eftirfylgni og þjónustusamningar

Boðið er upp á reglulegar heimsóknir, stöðuga sívöktun og langtímasamninga sem styðja við samfellu í eftirliti og aukið rekstraröryggi.

 

 

 

Dæmi um algeng frávik

Hér á eftir eru talin upp algengar bilanir í vélbúnaði:

  • Ójafnvægi í vélasamstæðu (imbalance)
  • Bilun í legum (bearing failures)
  • Los í undirstöðum eða vélbúnaði (mechanical looseness)
  • Afrétting í vélarsamstæðu ófullnægjandi (misalignment)
  • Óæskileg eigintíðni eða sveiflur í vélum og umhverfi 
    (resonance and natural frequencies)
  • Eigintíðni og sveiflur (resonance)

Af hverju velja HD?

Þjónusta HD á sviði ástands og eftirlits er sniðin að rekstraraðilum þar sem áreiðanleiki og öryggi skipta sköpum. Þjónustan beinist að tæknistjórum skipa og útgerða, viðhaldsstjórum í iðnaði, orkufyrirtækjum og framleiðslufyrirtækjum þar sem niðritími hefur verulegan kostnað.

Með faglegri ástandsgreiningu og skaðlausum prófunum greinir HD frávik áður en bilun verður. Það dregur úr óvæntum stöðvunum, styður við ástandsdrifið viðhald og gerir rekstraraðilum kleift að taka gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á mælanlegum staðreyndum.

HD sameinar vottaða sérfræðiþekkingu, reynslu úr krefjandi umhverfi og nútímalega greiningartækni. Með skýrum ferlum, rekjanlegri skýrslugerð og sveigjanlegum lausnum. Hvort sem um er að ræða einstök verkefni eða þjónustusamninga, fær viðskiptavinur heildstæða lausn sem tryggir aukið rekstraröryggi og betri nýtingu búnaðar.

Bókaðu ráðgjöf um ástand og eftirlit HÉR

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.