Plötusmíði

HD veitir alhliða þjónustu í plötusmíði og stálsmíði um allt land. Plötusmíði er ein af grunnstoðum HD og félagið býr yfir áratugalangri reynslu og þekkingu á hefðbundinni stálsmíði. Við bjóðum upp á alhliða þjónustu um allt land, með verkstæði á Grundartanga, Akureyri, Eskifirði og í Kópavogi. Verkstæðið í Kópavogi hefur sérlega mikla lofthæð og er sérútbúið fyrir umfangsmikil og sérhæfð verkefni í plötusmíði.

Tækjakostur HD er fjölbreyttur og gerir okkur kleift að takast á við margvísleg stálsmíðaverkefni – allt frá einföldum stálbitum til stórra og flókinna burðarvirkja.

Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, öryggi og sveigjanleika í framkvæmdum, hvort sem um er að ræða sérsmíði, viðgerðir eða umfangsmiklar verkframkvæmdir.

Deildarstjóri í Kópavogi

Elvar Örn Svavarsson
elvar@hd.is 
M: 660 3638

Deildarstjóri á Grundartanga
Páll Indriði Pálsson
pallip@hd.is 
M: 660 3648

Deildarstjóri á Akureyri
Friðrik Karlsson
fridrik@hd.is 
M: 660 3618

Deildarstjóri á Eskifirði
Njáll Andersen
njall@hd.is 
M: 663 1379

Tankasmíði

Smíði á stáltönkum er eitt af sérsviðum í okkar þjónustu. Tankasmíði hefur lengi verið öflugur þáttur í starfseminni og hefur félagið sérhæfðan búnað á borð við tankatjakka sem gera okkur kleyft að reisa tanka á verkstað af miklu öryggi. Málmsuðumenn okkar eru vottaðir í suðuferlum fyrir tankasmíði.

HD annast einnig viðgerðir og nýsmíði á hráefnis-, lýsis-, og olíutönkum og býður þjónustu til ástandsmælinga.

Plasma og vatnsskurður, beygingar og völsun

Hjá HD eru í notkun 2 tölvustýrðar vatnsskurðarvélar, í Kópavogi og í Mosfellsbæ.  Við bjóðum einnig uppá hágæða plasma og gas skurðarvél í Kópavogi og á Eskifirði. Tækjabúnaður til þess að  klippa, beygja og valsa stál er til staðar á flestum starfsstöðvum okkar.

Viðgerðir á vinnuvélum

Við höfum lengi sinnt viðhaldi á gámavögnum, bæði á grind vagnanna og lyftu búnaði

Vottaðir suðumenn

Suðumenn HD eru vottaðir í TIG, MIG, pinna og róterandi  pulver suðu. Jafnframt hefur fyrirtækið vottaða suðuferla sem tryggir gæði og rekjanleika allrar suðuvinnu.

Viðgerðir og viðhald skipa

Viðgerðir og viðhald á skipum fyrir útgerðarfélög á Íslandi er eitt af okkar sérsviðum. Til þess að útfæra viðgerðir, viðbætur og viðhald á stáli og vélbúnaði sem best og á sem hagkvæmastan hátt fyrir okkar viðskiptavini erum við búnir tæknimönnum, vélvirkjum og suðumönnum.

Framleiðsla á CE merktum vörum

Við framleiðum CE merktar vörur

Uppsetning stálvirkja

Allt sem þarf til uppsetningar á stálvirkjum, hvort sem þau eru smíðuð hjá okkur eða annarstaðar, er til staðar hjá félaginu.

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.