Kópavogur

Vesturvör 36, 200 Kópavogur

Starfsstöð HD í Kópavogi er eitt öflugasta þjónustuverkstæði landsins á sviði málm- og véltækni. Verkstæðið býr yfir góðum tækjakosti og hér starfar öflugur hópur sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu. Verkstæðið skiptist í stáltæknisvið og véltæknisvið. Verk- og tæknifræðingar eru tiltækir á starfsstöðinni sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar sérhæfða ráðgjöf og tækniþjónustu. HD býr yfir fjölbreyttum og háþróuðum búnaði sem styður við vinnu tæknimanna, svo sem 3D Skanni, 3D rýmis myndavél, málmefnagreinir og búnaður til ástandsgreininga, titringsmælinga og margt fleira. Þessi sameining mannafla, þekkingar og tækni gerir okkur kleift að bjóða lausnir sem standast ströngustu kröfur atvinnulífsins.

Stáltæknisvið er vel útbúið til að takast á við alla hönnun og smíði á stálvirkjum og plötusmíði, m.a. með tölvustýrðar skurðarvélar fyrir stálplötur. Hátt er til lofts og er verkstæðið útbúið öflugum brúkrönum sem gerir vinnu við uppstillingu stórra vélahluta bæði örugga og hagkvæma.

Véltæknisvið skiptist í þrjár sérhæfðar einingar; vélaverkstæði, renniverkstæði og tjakkaverkstæði.

Vélaverkstæðið þjónustar bæði sjávarútveg og stóriðju. Verkstæðið er vel tækjum búið og sérhæft í þjónustu við vélaupptektir, viðgerðir á dælum, gírum og öðrum vélbúnaði. Með reglulegri endurnýjun á tækjakosti tryggjum við áreiðanlega og hágæða þjónustu sem stenst kröfur krefjandi atvinnugreina.

Tjakkaverkstæði. Þó flestar okkar starfsstöðvar hafi aðstöðu til að þjónusta vökvatjakka, þá er starfsstöð okkar í Kópavogi er með sérhæft tjakkaverkstæði. Þar fer saman mikil þekking og áralöng reynsla á nýsmíði, endurhönnun, endursmíði og viðhaldi vökvatjakka sem og lofttjakka. Reynsla og þekking starfsmanna tryggja að hver viðskiptavinur fái lausn sem uppfyllir nákvæmlega hans þarfir. HD hefur lengi þjónustað vökvatjakka fyrir íslenska skipaflotann, stóriðju, flutningsgeirann og matvælaiðnaðinn.

Renniverkstæði HD í Kópavogi er eitt öflugasta sinnar tegundar á landinu og sérhæfir sig í nýsmíði stakra varahluta og þjónustuviðgerðum á fjölbreyttum vélbúnaði. Verkstæðið er búið bæði tölvustýrðum fræsivélum og rennibekkjum, auk hefðbundinna véla sem nýtast við sérhæfðar viðgerðir. Samspil háþróaðs búnaðar og sérfræðiþekkingar tryggir nákvæma vinnslu og endingargóðar lausnir.

Hér fyrir neðan má sjá dæmi um þá þjónustu sem HD í Kópavogi býður. Upplýsingar um vöruflokka sem við bjóðum viðskiptavinum okkar má finna undir valmynd um vörur.

Tæknsvið og verkstæðin okkar hafa eftirfarandi opnunartíma:

Mánudaga -Föstudaga kl  07:30 – 16:15

Tengiliðir

Elvar Örn Svavarsson
Sviðsstjóri stóriðju- og útgerðarsviðs
Helgi Magnús Valdimarsson
Tækniþjónusta
Jóhannes Miller
Verkstjóri renniverkstæðis
Ólafur Kolbeinsson
Tækniþjónusta
Ormur H. Sverrisson
Verkstjóri tjakkaverkstæðis
Þorleifur Halldórsson
Verkstjóri skipaviðgerða

Helsta þjónusta

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.