Nemar í orku- og iðnaðartæknifræði í heimsókn hjá HD

Á dögunum tók HD á móti hópi nema frá Akureyri, sem stunda nám í orku- og iðnaðartæknifræði við Háskólann í Reykjavík, í starfsstöð fyrirtækisins í Mosfellsbæ. Markmið heimsóknarinnar var að kynna sér starfsemi HD í orkugeiranum, fá innsýn í verkefni fyrirtækisins og ræða framtíðartækifæri innan greinarinnar.

Gestunum var vel tekið og fengu þeir góða kynningu á fyrirtækinu og hlutverki HD í íslenskum iðnaði. Nemarnir fengu jafnframt innsýn í rótorviðgerðir og ástandsgreiningar þar sem farið var yfir verklag, tæknilausnir og mikilvægi nákvæmrar greiningar fyrir rekstraröryggi og endingu búnaðar.

Að kynningu lokinni var gestunum boðið upp á hádegisverð þar sem gott tækifæri gafst til óformlegs samtals um námið, iðnaðinn og þau fjölmörgu tækifæri sem felast í orku- og tæknigeiranum á komandi árum.

HD leggur ríka áherslu á gott samstarf við menntastofnanir og telur mikilvægt að veita nemum raunhæfa innsýn í störf greinarinnar – enda liggur framtíð iðnaðarins í öflugri þekkingu, nýsköpun og næstu kynslóð sérfræðinga.

Elín Hlíf Helgadóttir, framkvæmdastjóri mannauðs: „HD leggur ríka áherslu á gott samstarf við menntastofnanir og telur mikilvægt að veita nemum raunhæfa innsýn í störf greinarinnar.“

Nemendur áhugasamir
Þorgeir Freyr Gíslason tæknimaður, gefur nemendum innsýn í viðgerðir á jarðvarmatúrbínum
Óttar Freyr Einarsson, sérfræðingur í skaðlausum prófunum veitir innsýn í kosti fyrirbyggjandi viðhald
Léttar veitingar voru kærkomnar

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.