Glæsilegt Samorkuþing að baki

Nú er fjölmennasta Samorkuþing frá upphafi að baki og á Samorka sannarlega hrós skilið fyrir að standa að þessum glæsilega og vel skipulagða viðburði.

Á þinginu komu saman fjölmargir aðilar úr orkugeiranum til að deila reynslu og lausnum – og efla tengslanetið.

Það vakti sérstaka ánægju að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, heimsótti bás HD, kynnti sér áherslur og framtíðarsýn fyrirtækisins og ræddi mikilvægi innlendrar þjónustu fyrir rekstraröryggi orkuinnviða – þar sem nálægð og þekking á íslenskum aðstæðum skiptir sköpum þegar á reynir.

HD átti sjö fulltrúa á þinginu og af þeim fluttu tveir erindi: Árni Jakob Ólafsson, deildarstjóri virkjana, um mikilvægi þess að byggja upp innlenda viðhalds- og viðbragðsgetu til að tryggja rekstraröryggi orkuinnviða. Sjálfbært viðhald er ekki bara kostur – það er lykillinn að öruggu orkukerfi. Jafnframt flutti Símon Þór Hansen, tæknilegur ráðgjafi, örerindi um hvernig HD þjónustar hitaveitur með rekstraröryggi að leiðarljósi.

Við erum stolt af því að taka þátt í uppbyggingu öruggra og sjálfbærra orkuinnviða fyrir framtíðina. HD þakkar Samorku fyrir frábært þing – og hlökkum til næsta þings.

HD liðið málar bæinn gulan á Samorkuþingi 2025

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.