Electrical Analysis

Rafgreining (Electrical Signature Analysis – ESA) er aðferð sem metur ástand mótora og rafala með því að greina rafmerki og orkunotkun. Með mælingu á spennu og straumi er hægt að greina misstillingar, ójafnvægi og slit án þess að setja hefðbundna titringsnema á búnaðinn.

Aðferðin hentar sérstaklega vel fyrir búnað sem er erfiður í aðgengi eða þar sem ekki er æskilegt að stöðva rekstur. Rafgreining styður við fyrirbyggjandi viðhald (predictive maintenance) og bætir orkunýtni (energy optimization). Búnaðurinn er einfaldur í notkun  og veitir dýrmæta innsýn í orkunýtingu og rekstrarástand búnaðar.

Rafgreining gefur snemma vísbendingar um:

  • Ójafnvægi (imbalance)
  • Misstillingu (misalignment)
  • Legubilun (bearing faults)
  • Rotor- og statorgalla (rotor/stator defects)
  • Aukin orkusóun (energy inefficiency)

Auk búnaðar til rafgreiningar býður HD einnig þjónustu við uppsetningu, vöktun og greiningu gagna.

Skoða þjónustu HD tengt rafgreiningu

Contacts

Gísli Arnar Guðmundsson
Akureyri
Deildarstjóri ástandsgreininga

Send an inquiry

What are you looking for?

HD uses cookies, among other things, to improve user experience and analyze website traffic.