Monitoring and Control Equipment

HD provides advanced condition monitoring solutions that allow companies to proactively monitor equipment performance and take action before costly breakdowns occur. Our systems support industrial, marine and energy operations where uptime and reliability are essential.

Our portfolio ranges from standalone measurement devices to fully integrated, real-time IoT monitoring systems for vibration, temperature, acoustics, leak detection and electrical parameters. Beyond hardware supply, we offer service agreements covering installation, diagnostics and continuous data monitoring based on customer requirements.

Beyond supplying equipment, HD provides service agreements covering installation, data acquisition, analysis and continuous monitoring. Customers can choose to purchase standalone equipment or rely on HD to deliver and manage a full-service solution – entirely or in part.
  • Ójafnvægi í vélasamstæðu (imbalance)
  • Bilun í legum (bearing failures)
  • Los  í undirstöðum eða vélbúnaði (mechanical looseness)
  • Afréttting í vélarsamstæðu ófullnægjandi (misalignment)
  • Óæskileg eigintíðni eða sveiflur í vélum og umhverfi
    (resonance and natural frequencies)
  • Rafkerfisbilun í mótorum (electrical faults in motors)
  • Bognir öxlar (bent shafts)
  • Bilun í gírkössum (gearbox failures)
  • Tæring og holumyndun í dælum (cavitation in pumps)
  • Rekstur á krítískum hraða (critical speeds)

 

Fáðu nánari upplýsingar um ástandsmælingar og vöktun hér.

Contact
Gísli Arnar Guðmundsson
Akureyri
Deildarstjóri ástandsgreininga

Hátíðnihlustun (Airborne & Structure-Borne Ultrasound) er nákvæm mæliaðferð sem nemur háa tíðni yfir heyrnarmörkum mannseyra. Aðferðin er sérstaklega áhrifarík til að greina fyrstu stig bilana í vélbúnaði og þrýstikerfum – áður en þau valda tjóni.

Skynjarar gefa snemma vísbendingar um:

  • legubilun (bearing defects)
  • loftleka í þrýstikerfum (air leaks)
  • cavitation í dælum (cavitation detection)
  • rafneista og losun í rafbúnaði (electrical discharge / arcing)
  • galla í lokum og gufukerfum (valve leakage)

Lausnin er sérstaklega gagnleg í hávaðasömu iðnaðarumhverfi þar sem hefðbundnar mælingar eru erfiðar. Hátíðnihlustun styður við fyrirbyggjandi viðhald (predictive maintenance) og dregur úr óvæntum niðritíma (downtime reduction).

HD býður bæði færanlegan ultrasound búnað til reglubundinna mælinga og lausnir sem samþætta má við sívöktunarkerfi.

Skoða þjónustu HD tengt hátíðnihlustun

Contact
Gísli Arnar Guðmundsson
Akureyri
Deildarstjóri ástandsgreininga

Rafgreining (Electrical Signature Analysis – ESA) er aðferð sem metur ástand mótora og rafala með því að greina rafmerki og orkunotkun. Með mælingu á spennu og straumi er hægt að greina misstillingar, ójafnvægi og slit án þess að setja hefðbundna titringsnema á búnaðinn.

Aðferðin hentar sérstaklega vel fyrir búnað sem er erfiður í aðgengi eða þar sem ekki er æskilegt að stöðva rekstur. Rafgreining styður við fyrirbyggjandi viðhald (predictive maintenance) og bætir orkunýtni (energy optimization). Búnaðurinn er einfaldur í notkun  og veitir dýrmæta innsýn í orkunýtingu og rekstrarástand búnaðar.

Rafgreining gefur snemma vísbendingar um:

  • Ójafnvægi (imbalance)
  • Misstillingu (misalignment)
  • Legubilun (bearing faults)
  • Rotor- og statorgalla (rotor/stator defects)
  • Aukin orkusóun (energy inefficiency)

Auk búnaðar til rafgreiningar býður HD einnig þjónustu við uppsetningu, vöktun og greiningu gagna.

Skoða þjónustu HD tengt rafgreiningu

Contact
Gísli Arnar Guðmundsson
Akureyri
Deildarstjóri ástandsgreininga

HD býður upp á úrval af sérhæfðum skynjurum sem henta fyrir ýmsar aðferðir í ástandsgreiningu vélbúnaðar – allt frá einföldum punktmælingum yfir í snjalla IoT-vöktun í rauntíma. Hvort sem þú ert að leita að lausnum fyrir titring, hita, hljóð, loftleka, rafmerki eða sveiflur, þá höfum við skynjara sem henta þínum rekstri og mælikröfum.

Skynjararnir okkar nýtast m.a. við:
Titringsgreiningu (vibration sensors)
Hitamælingar og hitamyndun (infrared/thermal)
High-Frequency Monitoring (ultrasound sensors)
Rafmerkjagreiningu (electrical signature analysis)
– Föst kerfi og færanlegar lausnir fyrir sívöktun

Sívöktunarkerfi (Online Condition Monitoring Systems) safna gögnum stöðugt í rauntíma og greina frávik sjálfkrafa. Skynjarar eru fast uppsettir og senda mæligögn í greiningarkerfi sem fylgist með þróun yfir tíma (trend monitoring) og nemur breytingar áður en þær þróast í bilanir.

Þessi lausn hentar sérstaklega fyrir búnað sem má ekki stöðvast og þar sem niðritími hefur veruleg áhrif á rekstur, til að mynda:

  • Framleiðslulínur
  • Skip og sjávarútvegur
  • Orkuframleiðsla
  • Olíu- og iðnaðarbúnaður

Helsti ávinningur við sívöktun:

  • minnkaður niðritími
  • fyrirbyggjandi viðhald
  • gagnadrifnar ákvarðanir
  • betri rekstraröryggi

Gögn eru aðgengileg í vafra og snjalltækjum og hægt er að tengja kerfið við gervigreindarhugbúnað fyrir ítarlega greiningu og reglubundnar skýrslur.

HD býður bæði sölu á sívöktunarkerfum og heildarlausnir með uppsetningu og greiningu sem hluta af þjónustusamningi.

Skoða þjónustu HD tengt sívöktun

Titringsmæling (Vibration Analysis) er ein skilvirkasta aðferðin til að meta ástand vélbúnaðar. Með greiningu á tíðnimynstri (FFT spectrum analysis) eru gögn úr mælum unnin í sérhæfðum hugbúnaði þar sem hægt er að bera saman tíðni og greina frávik sem benda til bilana, svo sem í legum, öxlum eða gírkassa.

Með þessari aðferð er unnt að greina bilanir á byrjunarstigi og grípa til aðgerða áður en þær þróast í bilanir.

HD býður bæði færanlega titringsmæla fyrir reglubundnar skoðanir og háþróaðan búnað fyrir ítarlega tíðnigreiningu og langtímavöktun. Lausnirnar henta fyrir viðhaldsteymi sem vilja taka upplýstar ákvarðanir byggðar á mælanlegum og rekjanlegum gögnum.

Auk sölu á búnaði býður HD upp á uppsetningu, gagnaúrvinnslu og reglulega vöktun sem hluta af þjónustusamningi, fyrir þá sem vilja heildstæða lausn.

Skoða þjónustu HD tengt titringsmælingum

HD býður bæði sölu á eftirlitsbúnaði og heildstæða þjónustu.
Sum fyrirtæki kjósa að reka kerfin sjálf – önnur fela HD að sjá um mælingar, greiningu og eftirfylgni að öllu, eða að hluta.

Fá ráðgjöf um þjónustusamning (hafa samband)

What are you looking for?

HD uses cookies, among other things, to improve user experience and analyze website traffic.