HD veitir sérhæfða og vottaða þjónustu í málmsuðu fyrir iðnað, mannvirkjagerð og orkuiðnað. Við byggjum á áratuga reynslu, vottuðum verkferlum og alþjóðlega viðurkenndum gæðastöðlum.
Við erum eitt af fáum fyrirtækjum á Íslandi með alþjóðlega suðuvottun samkvæmt ISO 3834 og erum jafnframt með gæðakerfi samkvæmt ISO 9001. Við vinnum eingöngu með hæfu, vottaðu starfsfólki og framkvæmum allar suður með heildstæðu gæðaeftirliti – fyrir, á meðan og eftir að vinna fer fram.
Málmsuða getur falið í sér mikla ábyrgð og við hjá HD tökum þá ábyrgð alvarlega.
HD veitir sérhæfða og vottaða þjónustu í málmsuðu fyrir iðnað, mannvirkjagerð og orkuiðnað. Við byggjum á áratuga reynslu, vottuðum verkferlum og alþjóðlega viðurkenndum gæðastöðlum.
Við erum eitt af fáum fyrirtækjum á Íslandi með alþjóðlega vottun samkvæmt ISO 3834 og erum jafnframt með gæðakerfi samkvæmt ISO 9001. Við vinnum eingöngu með hæfu, vottaðu starfsfólki og framkvæmum allar suður með heildstæðu gæðaeftirliti – fyrir, á meðan og eftir að vinna fer fram.
Málmsuða getur falið í sér mikla ábyrgð og við hjá HD tökum þá ábyrgð alvarlega.
Viðskiptavinir sem velja vottuð vinnubrögð fá tryggingu fyrir því að verkið sé unnið eftir viðurkenndum stöðlum. Vottað suðuferli samkvæmt ISO 3834 tryggir rétt efnisval, skjalfesta ferla, vottaða suðumenn og stöðugt gæðaeftirlit – fyrir, meðan og eftir framkvæmd.
Þetta verklag lágmarkar áhættu, tryggir varanlega lausn og opnar leið að opinberum og alþjóðlegum verkefnum þar sem gæðavottun er skilyrði. Við beitum m.a. sjónskoðun, yfirborðsprófunum og skaðlausum prófunum. Gæðaeftirlit er í höndum sérþjálfaðs starfsfólks með vottaða þjálfun, og við tryggjum skráningu og faglega stýringu í hverju skrefi.
Ef þú ert með verkefni þar sem málmsuða skiptir máli, þá erum við reiðubúin. Með vottuðum ferlum og skýrri yfirsýn tryggjum við vandaða útkomu – í hverju suðuskrefi.
Vantar þig aðstoð við suðuverkefni?
Við bjóðum faglega ráðgjöf, verðmat og úttekt á verkefnum – hvort sem þau eru í undirbúningi eða í gangi. Hafðu samband í dag og við hjálpum þér að finna réttu lausnina.