Kynningarmyndband um fyrirbyggjandi viðhald:
Ástandsgreiningar hafa tekið miklum framförum á undanförnum árum og gegna nú lykilhlutverki í viðhaldsrekstri, hvort sem um er að ræða vélbúnað í stöðugum rekstri eða burðarvirki sem þurfa að standast strangar kröfur. Með þróuðum mælibúnaði, gagnadrifinni greiningu (IoT) og skaðlausar prófanir (NDT) er hægt að fylgjast náið með ástandi búnaðar og mannvirkja og grípa til aðgerða áður en frávik leiða til bilana eða kostnaðarsamra rekstrarstöðvana.
HD veitir heildstæða þjónustu í ástandsgreiningu og skaðlausra prófana fyrir iðnað, sjávarútveg og orkustarfsemi. Með notkun háþróaðrar tækni, gervigreindar og vottaðrar sérfræðiþekkingar greinum við frávik snemma, metum ástand burðarvirkja og styðjum við markvissar ákvarðanir um viðhald og áframhaldandi rekstur.
Markmiðið er skýrt: að lengja líftíma búnaðar, tryggja rekstraröryggi og lágmarka óvæntan niðritíma.
Contact:
Gísli Arnar Guðmundsson
astandsgreiningar@hd.is
S: 844 0313
Hér á eftir eru talin upp algengar bilanir í vélbúnaði:
Titringsmælingar eru ein skilvirkasta aðferðin til að meta ástand vélbúnaðar. Með greiningu á tíðnimynstri (FFT spectrum analysis) eru gögn unnin í sérhæfðum hugbúnaði þar sem frávik eru borin saman við þekkt bilunarmynstur.
Þannig er hægt að greina legubilun, misstillingu, ójafnvægi og aðra galla á byrjunarstigi, áður en niðritími verður verulegur.
HD býður bæði reglubundnar mælingar og sívöktun, auk uppsetningar og gagnaúrvinnslu sem hluta af þjónustusamningi.
Starfsmenn HD eru þjálfaðir samkvæmt ISO 18436 í Vibration Analysis.

Kynningarmyndband um fyrirbyggjandi viðhald:
Sívöktunarkerfi safna gögnum stöðugt í rauntíma og greina frávik sjálfkrafa. Skynjarar eru fast uppsettir og senda gögn í greiningarkerfi sem fylgist með þróun yfir tíma (trend monitoring).
HD býður upp á sívöktun með IoT- og LoRa X2-lausnum, þar sem nemar safna gögnum í rauntíma, til dæmis um titring og hitastig. Einnig er hægt að mæla önnur gildi, svo sem straumtöku, raka, þrýsting og fleira. Gögnin eru aðgengileg bæði í vafra og í snjalltækjum og sýna jafnt núverandi stöðu sem sögu mælinga frá því búnaðurinn var settur upp.
Að lokum er hægt að flytja gögnin yfir í gervigreindarforrit þar sem fram fer ítarleg og nákvæm greining, ásamt reglubundinni skýrslugerð. Það veitir eigendum fyrirtækja betri yfirsýn og hugarró.
Sívöktun bætir yfirsýn, viðbrögð og dregur úr líkum á óvæntum bilunum.
Kynningarmyndband um el-Watch:

Sjá einnig frekari kynningu á mismunandi lausnum el-Watch á Youtube.
Kynningarmyndbönd um TWave:
Airborne Ultrasound er notað til að nema háa tíðni sem gefur vísbendingu um fyrstu merki bilana, sérstaklega í legum.
Aðferðin nýtist einnig til að greina loft- og vökvaleka, t.d. í háværum vélasölum og frárennsliskerfum vatnsaflsvirkjana.
Starfsmenn HD eru þjálfaðir í Airborne Ultrasound, Level 1.
Myndband: Afhverju virkar hátíðni hlustun vel?
HD býður upp á ástandsgreiningu með búnaði sem greinir rafmerki frá mótorum og rafölum. Aðferðin byggir á því að fylgjast með raforkunotkun í rauntíma og greina frávik í hegðun án þess að þurfa hefðbundnar titringsmælingar eða viðveru starfsfólks.
Kerfið lærir á virkni vélbúnaðarins og nemur sjálfkrafa ef afbrigði koma fram, svo sem ójafnvægi, misstillingar eða slit. Það getur bent nákvæmlega á hvar frávik eiga sér stað og hvað þarf að skoða nánar.
Með þessari aðferð er einnig hægt að greina orkusóun vegna bilana – til dæmis getur ójafnvægi leitt til aukinnar orkunotkunar og hærri rekstrarkostnaðar.
Kynning á Artesis e-MCM ástandsvöktunarkerfi
Sjá frekari kynningu á mismunandi lausnum Artesis á Youtube.
Með hitamyndavél má greina geislun frá yfirborði íhluta og birta hana í myndrænni framsetningu sem veitir skýra yfirsýn yfir möguleg frávik. Aðferðin nýtist sérstaklega vel til að greina óeðlilega hitamyndun í rafbúnaði, vélasamstæðum og tengingum.
Mikilvægt er þó að hafa í huga að hitamyndir sýna eingöngu geislun frá yfirborði – til dæmis er ekki hægt að mynda rafbúnað í gegnum gler, þar sem aðeins sést geislunin frá glerinu sjálfu.
Notagildi hitamyndavéla er víðtækt. Hitamyndun veitir góða innsýn í ástand mótortenginga, rofa, tengiskápa og annarra rafíhluta.
Kynningarmyndband sýnir dæmi um bilanagreiningu með hitamyndavélum.