HD styrkir viðhalds- og eftirlitsþjónustu

HD hefur fengið umboð fyrir sænska tæknifyrirtækið pureSignal, sem sérhæfir sig í háþróuðum lausnum fyrir ástandsvöktun og ástandsdrifið viðhald á vélbúnaði. Með samstarfinu styrkir HD þjónustu sína á sviði gagnadrifinnar ástandsgreiningar, þar sem öflugur tæknigrunnur styður við betri ákvarðanatöku, lægri líftímakostnað búnaðar og minni rekstraráhættu.

PureSignal þróar langdrægar þráðlausar skynjaralausnir sem senda svokölluð óþjöppuð tímamerki (uncompressed time signals), sem gera kleift að framkvæma nákvæma greiningu á ástandi vélbúnaðar. Með slíkri tækni er hægt að greina frávik í rekstri mun fyrr en með hefðbundnum lausnum og bregðast við áður en bilun veldur rekstrarstöðvun.

Skynjararnir mæla meðal annars titring, hitastig og rekstrarhegðun búnaðar og eru hannaðir til stöðugrar vöktunar í krefjandi rekstrarumhverfi, þar sem rekstraröryggi og fyrirsjáanleiki skipta miklu máli.

HD hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á ástandsgreiningu sem stjórntæki í rekstri – ekki aðeins sem tæknibúnað. Með umboðinu fyrir pureSignal bætist við enn öflugri tæknigrunnur sem styður við gagnadrifnar ákvarðanir, lækkar líftímakostnað búnaðar og dregur úr rekstraráhættu.

Samstarfið gerir okkur kleift að efla þjónustu okkar enn frekar og styðja viðskiptavini í að færa viðhald úr viðbragðsdrifnu yfir í ástandsdrifið form,“ segir Gísli Guðmundsson, sérfræðingur á sviði ástandsgreiningar hjá HD.

Hjá PureSignal er lögð áhersla á þekkingu og stöðu HD á íslenskum markaði. „HD býr yfir sterkri tæknilegri þekkingu og traustri stöðu á markaðnum,“ segir Christian Sahlin, sölustjóri pureSignal.

Með umboðinu styrkir HD stöðu sína sem leiðandi aðili á sviði ástandsgreininga og eykur framboð sitt á gagnadrifnum viðhaldslausnum til íslenskra fyrirtækja.

.

Samstarfið gerir okkur kleift að efla þjónustu okkar enn frekar og styðja viðskiptavini í að færa viðhald úr viðbragðsdrifnu yfir í ástandsdrifið form,“ segir Gísli Guðmundsson, sérfræðingur á sviði ástandsgreiningar hjá HD.

Handhægur búnaður, auðveldur í uppsetningu. Aflestur í snjalltækjum mögulegur.

What are you looking for?

HD uses cookies, among other things, to improve user experience and analyze website traffic.