Employment available

Hjá HD starfa yfir 200 manns á starfsstöðvum okkar í Kópavogi, Mosfellsbæ, Akureyri, Straumsvík, Grundartanga og Eskifirði. Við störfum í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi þar sem þekking og reynsla starfsfólks skipta sköpum.

Við leggjum áherslu á fagmennsku, öfluga liðsheild og uppbyggilegt vinnuumhverfi þar sem hver og einn fær tækifæri til að vaxa og leggja sitt af mörkum. Starfsmenn HD – hvort sem um ræðir iðnaðarmenn, tæknimenntaða sérfræðinga eða skrifstofufólk – fá stuðning til að þróast í starfi, nýta hæfni sína til fulls og vera hluti af traustu og samhentu teymi.

Við bjóðum upp á öruggt og faglegt vinnuumhverfi með skýrum verkferlum, nýjustu tækni og sterkri liðsheild. Við leggjum áherslu á að ráða hæft og metnaðarfullt fólk sem sýnir frumkvæði, axlar ábyrgð og vill taka virkan þátt í að móta framtíð fyrirtækisins.

Gildin okkar –  öryggi, heiðarleiki, þjónustulund og fagmennska – eru okkur að leiðarljósi í öllum daglegum störfum.

What are you looking for?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.