Öflug þjónusta við tjakkaviðgerðir hjá HD

HD býður upp á faglega þjónustu við nýsmíði, viðgerðir og viðhald á vökva- og lofttjökkum.  Með áralangri reynslu og sterkri þekkingu á efnisvali leggur fyrirtækið áherslu á lausnir sem styðja við öruggan og hagkvæman rekstur.

Tjakkar eru oft í krefjandi aðstæðum þar sem slit og bilun geta haft áhrif á framleiðni. Því skiptir máli að viðgerðir séu unnar með vönduðum verkferlum og réttum efnum, meðal annars þéttingum og smíðaefnum sem henta aðstæðum og stuðla að áreiðanlegri virkni.

HD hefur um árabil þjónustað fyrirtæki um allt land í meðal annars útgerð, stóriðju, flutningum og iðnaði. Á tjakkaverkstæðinu er unnið að upptektum, greiningum og viðgerðum, auk sérsmíði eftir þörfum. Aðgangur að algengum íhlutum og öflug verkstæðisaðstaða styður við skilvirka vinnslu og getur dregið úr niðritíma búnaðar.

Allir tjakkar sem fara frá HD eru prófaðir og vottaðir fyrir afhendingu, til að staðfesta virkni og lekaþol í samræmi við notkunarskilyrði, sem eykur rekstraröryggi og minnkar líkur á ófyrirséðum bilunum.

Ormur H. Sverrisson er verkstjóri á tjakkaverkstæði HD og tekur vel á móti öllum nýjum verkefnum.

What are you looking for?

HD uses cookies, among other things, to improve user experience and analyze website traffic.