Electrical Analysis
Rafgreining (Electrical Signature Analysis – ESA) er aðferð sem metur ástand mótora og rafala með því að greina rafmerki og orkunotkun. Með mælingu á spennu og straumi er hægt að greina misstillingar, ójafnvægi og slit án þess að setja hefðbundna titringsnema á búnaðinn.
Aðferðin hentar sérstaklega vel fyrir búnað sem er erfiður í aðgengi eða þar sem ekki er æskilegt að stöðva rekstur. Rafgreining styður við fyrirbyggjandi viðhald (predictive maintenance) og bætir orkunýtni (energy optimization). Búnaðurinn er einfaldur í notkun og veitir dýrmæta innsýn í orkunýtingu og rekstrarástand búnaðar.
Rafgreining gefur snemma vísbendingar um:
- Ójafnvægi (imbalance)
- Misstillingu (misalignment)
- Legubilun (bearing faults)
- Rotor- og statorgalla (rotor/stator defects)
- Aukin orkusóun (energy inefficiency)
Auk búnaðar til rafgreiningar býður HD einnig þjónustu við uppsetningu, vöktun og greiningu gagna.