Valgeir Pétursson sviðsstjóri nýs tæknisviðs HD

HD hefur ráðið Valgeir Pétursson í starf sviðsstjóra nýs tæknisviðs fyrirtækisins. Í nýju skipuriti sameinast tæknideild og ástandsgreiningardeild undir einu öflugu sviði sem mun efla tæknilega forystu HD og styðja við áframhaldandi vöxt og þróun fyrirtækisins.

Samlegð og ávinningur fyrir viðskiptavini
Með sameiningunni er samspil þróunar, hönnunar, vöktunar og ástandsgreininga styrkt. Teymin munu vinna þéttar saman að sérhæfðum lausnum fyrir iðnað, sjávarútveg og orkugeirann, með aukinni áherslu á gagnadrifna nálgun, rauntímavöktun og markvissar viðhaldsákvarðanir. Markmiðið er skýrara flæði í verkferlum, hraðari afgreiðsla flókinna verkefna og aukið rekstraröryggi og hagkvæmni fyrir viðskiptavini.

Forysta og reynsla
Valgeir er menntaður véltæknifræðingur með langa reynslu af sérhæfðum tæknilausnum fyrir íslenskan iðnað. Hann hefur starfað hjá leiðandi fyrirtækjum í hönnun og smíði tækni‑ og búnaðarkerfa fyrir iðnað, bæði á Íslandi og erlendis, og sinnt fjölbreyttum hönnunar‑ og verkefnastjórnunarhlutverkum. Árið 2012 gekk hann til liðs við Össur þar sem hann vann að þróun spelku‑ og stuðningsvara og stýrði (á síðari árum) alþjóðlegu þróunarteymi sem skapaði háþróaðar, notendamiðaðar vörur.

Áhersla á samvinnu og traust
„Ég trúi því að traust og samvinna séu grunnstoðir öflugra teyma. Þegar fólk upplifir að það tilheyri og hafi raunveruleg áhrif verður árangurinn meiri. Ég hlakka til að leggja mitt að mörkum við byggja upp sterka liðsheild og tryggja að sú sérþekking sem starfsfólk HD býr yfir nýtist enn betur“ segir Valgeir Pétursson, nýr sviðsstjóri tæknisviðs HD.

Framkvæmdastjórn fagnar ráðningunni
„Valgeir bætir við HD afar sterkri tæknilegri forystu og víðtækri reynslu af þróun og rekstri. Með komu hans styrkjum við tæknisviðið enn frekar og byggjum undir áframhaldandi þróun sérhæfðra lausna fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Árni Rafn Gíslason, forstjóri HD.

Ég hlakka til að leggja mitt að mörkum við að byggja upp sterka liðsheild og tryggja að sú sérþekking sem starfsfólk HD býr yfir nýtist enn betur,“ segir Valgeir Pétursson, nýr sviðsstjóri tæknisviðs HD.

What are you looking for?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.