HD og samfélagið

Það er markmið HD að vera fyrsta val viðskiptavina í þjónustu á sviði stálsmíði, vélbúnaðar og tækniþjónustu á landsvísu. Við leggjum áherslu á faglega þjónustu sem hefur jákvæð áhrif á umhverfi, efnahag og samfélag.

Gildi okkar (öryggi, heiðarleiki, þjónustulund og fagmennska) leiða okkur í daglegum rekstri og samskiptum við starfsfólk, birgja og viðskiptavini. Styrktarstefna okkar endurspeglar þessi gildi og leggur áherslu á verkefni sem styðja við kjarnastarfsemi félagsins eða tengjast samfélagsverkefnum á þeim svæðum þar sem starfsstöðvar okkar eru staðsettar. Áherslur í styrktarstarfi 

Við styðjum eingöngu verkefni sem samræmast gildum okkar og hafa skýra faglega eða samfélagslega skírskotun. Sérstök áhersla er lögð á menntun og þekkingaröflun, þar sem við styðjum námsfólk í iðn- og tæknigreinum á öllum skólastigum, með það að markmiði að efla hæfni framtíðarstarfsfólks og stuðla að framþróun greinarinnar. Helstu áherslusvið í styrktarstarfi HD eru því:

  • Nýsköpun og tækniframfarir: Hvatning til náms og starfsþróunar í iðn- og tæknigreinum

  • Sjálfbærni og ábyrgð: Stuðningur við verkefni sem efla sjálfbæra nýtingu auðlinda og ábyrga stjórnarhætti

  • Samfélagsverkefni: Verkefni sem stuðla að jákvæðum breytingum í nærumhverfi okkar

Umsókn um styrk

Umsóknir skulu sendar rafrænt í gegnum heimasíðu HD ásamt viðeigandi fylgigögnum. Umsóknir um styrki eru teknar fyrir ársfjórðungslega. Allar umsóknir eru metnar á grundvelli styrktarstefnu HD og svar sent að úrvinnslu lokinni.

Fyrirspurnir sendast á styrkir@hd.is

Upplýsingar um umsækjanda:

Upplýsingar um verkefni

Annað

What are you looking for?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.