Stækkun rótorverkstæðis eykur viðbragðsgetu jarðvarmavirkjana

HD Iðn- og tækniþjónusta hefur tekið í notkun stækkað rótorverkstæði á starfsstöð sinni í Mosfellsbæ og getur nú sinnt viðgerðum á tveimur jarðvarmarótorum samtímis. Með þessari uppbyggingu eykst verulega geta fyrirtækisins til að bregðast hratt við þegar bilanir koma upp í lykilbúnaði jarðvarmavirkjana.

Í jarðvarmavirkjunum starfa rótorar við krefjandi aðstæður þar sem gufa ber með sér raka og tærandi efni. Slit og skemmdir safnast upp og þegar bilun kemur upp stöðvast framleiðsla samstundis. Þá byrjar tíminn að telja niður.

Hver dagur í niðritíma getur haft veruleg áhrif á framleiðslu og afhendingaröryggi. Ef rótor þarf að fara erlendis í viðgerð lengist viðbragðstími oft um vikur eða mánuði. Þar skiptir staðbundin geta sköpum.

Með því að hafa greiningu, viðgerðir og enduruppbyggingu á rótorum innanlands er hægt að hefja vinnu án tafar, stytta viðgerðartíma verulega og draga úr heildarkostnaði sem hlýst af niðritíma. „Þetta snýst um tíma – því fyrr sem við komum að búnaðinum, því minni verða áhrifin á rekstur virkjunarinnar,“ segir Árni Jakob Ólafsson deildarstjóri virkjana hjá HD.

HD hefur á undanförnum árum byggt upp sérhæfða þekkingu á rótorviðgerðum í jarðvarmaumhverfi og þróað verkferla og lausnir sem taka mið af raunverulegum rekstrarskilyrðum og þeirri sérstöku álagsmynd sem fylgir jarðvarmagufu.  Með þessari uppbyggingu er verið að festa í sessi þá þekkingu og verkferlaþróun sem byggð hefur verið upp innanlands og staðsetja HD í fremstu röð viðgerðaraðila þegar kemur að flóknum rótorviðgerðum á heimsvísu.

Orkuöryggi byggir ekki aðeins á uppsettu afli, heldur einnig á því hversu hratt er hægt að bregðast við þegar eitthvað bilar. Stytting viðbragðstíma um daga eða vikur er því ekki einungis tæknilegt atriði heldur getur skilað verulegum sparnaði og auknu rekstraröryggi fyrir virkjunina.

Þessi uppbygging er liður í að festa í sessi öfluga viðgerðargetu innanlands.

Árni Jakob Ólafsson deildarstjóri virkjana hjá HD: „Þetta snýst um tíma – því fyrr sem við komum að búnaðinum, því minni verða áhrifin á rekstur.

Rótor undirbúinn og hífður inn á verkstæði HD
Rótor hífður á jafnvægisstillingar bekk
Rótor kominn í jafnvægisstillingar bekkinn
Sérhæfð rótorsuða er mikilvægur hluti af viðhaldi rótorhluta
Verið að endurvefja rafalarótor
Rótor undirbúinn fyrir hitameðhöndlun
Unnið við viðgerð á leiðiskóflu

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.