Skaðlausar prófanir

Kröfur um gæði og öryggi hafa aukist verulega á undanförnum árum og fela í sér margvíslegar áskoranir. Þó ýmsar stofnanir sinni hefðbundnu eftirliti, hefur sú þróun orðið að óháðir aðilar sinna í auknum mæli þessu mikilvæga hlutverki. Breytt löggjöf, aukin samkeppni og sífellt meiri krafa um skilvirkt og óháð eftirlit kalla á nýjar vinnuaðferðir og háþróaða tækni.

HD hefur á síðustu árum fest sig í sessi sem traustur aðili á þessu sviði. Starfsfólk fyrirtækisins býr yfir áralangri reynslu í framkvæmd svokallaðra skaðlausra prófana (NDT – Non Destructive Testing), sem gera kleift að kanna ástand og heilbrigði efna og mannvirkja án þess að valda skemmdum eða raska virkni þeirra. Með öðrum orðum eru þetta prófanir þar sem ekki er borað, sagað eða eytt – heldur eru notaðar tækni- og mæliaðferðir til að greina galla eða veikleika með nákvæmni og án inngrips.

HD hefur mikla reynslu af framkvæmd slíkra prófana, meðal annars á skipum, olíutönkum og stálmannvirkjum, þar sem notast er við tækni á borð við hljóðbylgjumælingar og þykktarmælingar.

HD vinnur samkvæmt nýjustu stöðlum og kröfum í greininni. Lögð er rík áhersla á fagleg vinnubrögð, gæðatryggðan tækjakost og rekjanleika gagna. Öll skjöl eru skráð rafrænt með skýrum rekjanleika sem stenst strangar öryggiskröfur. Helstu prófunaraðferðir sem fyrirtækið beitir eru:

  • Þykktarmælingar
  • Sprunguleit
  • Segulagnaprófun
  • Litaprófun
  • Suðuprófun með hljóðbylgjumælingum

 

Staðallinn sem leggur grunninn fyrir skaðlausar prófanir er  EN ISO 9712 staðalinn. Undanfarin ár hefur starfsfólk fyrirtækisins aflað sér aukinna réttinda og sérhæfingar samkvæmt þessum alþjóðlega staðli.

HD sameinar trausta þekkingu, vandaðan búnað og sveigjanleika í þjónustu – allt með það að markmiði að tryggja örugga og árangursríka lausn fyrir viðskiptavini sína.

Tengiliður
Gísli Arnar Guðmundsson
gisli@hd.is
M: 844 0313

Sprunguleitun

Segulagnaprófun (Magnetic-Particles Testings) er vel þekkt aðferð innan skaðlausra prófanna enda afar næm. Hún tekur sérstaklega vel  á yfirborðssprungum en getur einnig ná c.a. 1-2mm niður í efnið og því greint sprungur undir yfirborði efnisins. HD á allt til segulagnaprófunar og hjá fyrirtækinu leitumst við að þeir aðilar sem vinna við mælingar séu með þjálfun og skírteini í þeirri aðferð sem notuð er.

Litaprófun (Penetrant Testings) er þekkt aðferð til sprunguleitunar.  Mikið notuð í flugvélaiðnaðinum enda fljótleg en árangursrík. Litaprófið er prófunaraðferð sem ekki eyðileggur yfirborð efnisins. Galdurinn að þessu ferli er háræðaverkun efnisins og framköllunarinnar. Skarpir litir koma fram við framköllun. Prófunin er aðallega notað fyrir málma. Ef það hentar getur litarefnaprófun einnig sýnt galla í plasti og keramik. Það fer eftir yfirborði efnisins hvernig litapróf skal tekið. Engin ein litaprófunaraðferð dugar á alla fleti. HD á allt til litaprófunar og hjá fyrirtækinu leitumst við að þeir aðilar sem vinna við mælingar séu með þjálfun og skírteini í þeirri aðferð sem notuð er.

Hljóðbylgjuprófun (Ultrasound Inspection) er ein algengasta aðferð skaðlausra prófana sökum þess hve fljótleg og ódýr hún er.  Algengasta aðferðin innan UT eru þykktarmælingarnar en einnig er hún mikið notuð við að ástandsskoða rafsuður. Sprunguleit á boltum eða öxlum með UT er einnig afar öflug aðferð ef finna skal sprungur undir yfirborðinu. 

HD býður upp á allan búnað til hljóðbylgjuprófunar og leggur áherslu á að þeir sem sinna mælingum hafi viðeigandi þjálfun og vottun í þeirri aðferð sem notuð er.

Málmefnagreining

HD býr yfir háþróuðu LIBS málmgreiningartæki sem greinir málma á borð við;
kolefni (C), ál (Al), kísil (Si), títan (Ti), vandín (V), króm (Cr), mangan (Mn), kóbolt (Co), nikkel (Ni), kopar (Cu), níbóbín (Nb), mólýbden (Mo), volfram (W).

Málmefnagreining nýtist m.a. til að:

  • Staðfesta málmtegundir fyrir
    bakvirka hönnun og viðhald
  • Sannreyna efnisvottorð málma
  • Sannreyna málmtegundir frá birgjum við gæðaeftirlit með aðföngum
  • Velja rétta suðutækni og efni

Kynningarmyndband á málmefnagreiningu með LIBS málmgreiningartæki.

Þykktarmælingar

HD veitir sérhæfða og vottaða þjónustu í þykktarmælingum fyrir t.d. skip og olíugeyma og önnur mannvirki þar sem skaðlaus prófun (NDT) er nauðsynleg. Þjónustan byggir á ströngum kröfum um gæði, öryggi og rekjanleika, og er framkvæmd starfsfólki með viðeigandi þjálfun og réttindi.

Þykktarmælingar eru mikilvægur þáttur í reglubundnu öryggiseftirliti, þar sem þær gefa áreiðanlega mynd af ástandi stálhluta og mögulegri tæringu. Þær nýtast við mat á líftíma, viðhaldsáætlunum og í samræmi við lögbundnar kröfur um skoðanir og mengunarvarnir.

Í hverju felst þjónustan?

  • Þykktarmælingar framkvæmdar með hljóðbylgjumælingu.

  • Notkun kvörðunarblokka og skjalfesting samkvæmt stöðlum.

  • Mælingar unnar af starfsmönnum með viðurkennda vottun (t.d. ISO 9712 – UT Level 2).

  • Skýr og rekjanleg skýrslugerð sem uppfyllir kröfur eftirlitsaðila og tryggingafélaga.

  • Greining og skráning á niðurstöðum, mat á umfangi.

Lög og reglur sem krefjast þykktarmælinga

Með traustum búnaði, vottuðum sérfræðingum og skýrri ferlastjórnun tryggir HD að mælingar séu framkvæmdar faglega, hratt og í samræmi við kröfur.

3D skönnun

HD býður upp á þrívíddarskönnun með hátækniskanna sem mælir allt að 1,3 milljón mælipunkta á sekúndu með nákvæmni upp á ±0,02 mm. Skanninn hentar sérstaklega vel til að skanna óreglulega íhluti á stuttum tíma og veitir mjög nákvæmar niðurstöður

Út frá skönnunargögnum er hægt að búa til heilstætt þrívítt líkan (solid model) sem nýtist í teikningasett, hönnunarskjölum eða til framleiðslu á íhlutum. Skanninn getur einnig borið saman tvo hluti og greint nákvæman mun á milli þeirra, sem er t.d. gagnlegt við gæðaeftirlit, endurhönnun eða viðgerðir. 

Suðueftirlit

Við framkvæmd rafsuðu skiptir öllu máli að tryggja gæði og öryggi í gegnum allt ferlið – frá undirbúningi til lokaúttektar. Það felur í sér að fylgt sé staðfestu suðuferli og viðeigandi stöðlum, réttur búnaður sé notaður og að teikningar, efni og skjöl séu í samræmi við kröfur.

Skoðun eftir að suðu lýkur er mikilvæg – en ekki nóg. Skoðun áður en suða hefst og meðan á henni stendur getur skipt sköpum fyrir gæði suðunnar. Með ítarlegum gátlista má tryggja að öll atriði séu til staðar áður en loginn kviknar – og að vinnuferlið sjálft uppfylli ströngustu kröfur.

Flest þessi atriði falla undir ábyrgð suðueftirlitsmanns, en allt teymið þarf að vera meðvitað um ferlið. Hjá HD sjáum við til þess að allar skoðanir séu framkvæmdar af aðilum sem hafa viðurkennda þjálfun og gild vottorð fyrir viðkomandi prófunaraðferð, samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. 

HD starfar samkvæmt tveimur lykilvottunum sem tryggja öryggi og fagmennsku í allri rafsuðuvinnu: ISO 9001 fyrir gæðastjórnun og ISO 3834 sem nær sérstaklega til suðuferla, en HD er eitt af fáum fyrirtækjum á Íslandi með alþjóðlega suðuvottun. ISO 3834 nær yfir allt suðuferlið, frá undirbúningi og efnisvali til framkvæmdar, eftirlits og afhentrar vöru. Gæðastjórnunin tryggir rekjanleika, stöðugt eftirlit og faglega úttekt í öllum verkefnum.

Nánar um suðuvottun undir flipa um málmsuðu.

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.