Tjakkaverkstæði

HD býður upp á faglega og sérhæfða þjónustu við nýsmíði, viðgerðir, endursmíði og viðhald á vökva- og lofttjökkum. Áralöng reynsla starfsmanna, þekking og öflugur tækjakostur tryggja að við uppfyllum strangar kröfur um nákvæmni, gæði og endingu. Okkar sérþekking skiptir sköpum þegar kemur að efnisvali – til dæmis við notkun á hitaþolnum þétti og gæða smíðaefnum sem tryggja áreiðanleika og langtímaendingu.

HD hefur til margra ára þjónustað fjölbreyttum hópi viðskiptavina um allt land – m.a. í útgerð, stóriðju, flutningsgeira og matvælaiðnaði. Þjónustan byggir á traustum verkferlum, sveigjanleika og skýrum gæðakröfum.

Verkstjóri tjakkaverkstæðis
Ormur H. Sverrisson
ommi@hd.is
M: 660 3630

Nýsmíði á vökvatjökkum

HD býður upp á mikinn sveigjanleika í sérsmíði á vökvatjökkum.

Við smíðum tjakka í ýmsum stærðum og með mismunandi virkni – sniðna að þörfum hvers viðskiptavinar. Lausnirnar byggja á öflugri verkþekkingu og hágæða efnisvali, sem tryggja endingargóða og áreiðanlega tjakkalausn.

Þrýstiprófanir á vökvatjökkum

Tjakkaverkstæði HD er búið sérhæfðum tjakkabekk fyrir sundurrif og samsetningu á tjökkum, ásamt öflugum búnaði til þrýsti- og álagsprófana. 

Allir tjakkar sem fara frá HD eru prófaðir og vottaðir fyrir afhendingu – sem tryggir hámarks öryggi, áreiðanleika og fulla virkni í rekstri.

Viðgerðir á vökva- og lofttjökkum

HD annast upptektir, greiningar og viðgerðir á vökva- og lofttjökkum, auk þess að sérsmíða tjakka eftir þörfum. Við höfum aðgang að vel búnum lager með algengustu íhlutum og þétti, og sjáum jafnframt um sérpantanir fyrir sérstakar gerðir og útfærslur. 

Samhliða tjakkaverkstæðinu starfar fullbúið renniverkstæði með nýjustu tækjum og sérhæfðu starfsfólki. Sú aðstaða tryggir nákvæmni, gæði og skilvirkni í allri viðgerðarvinnu.

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.