Gæði og öryggi

Gæði og öryggi

Þegar rekstraröryggi skiptir máli þarf að vera hægt að treysta bæði framkvæmdinni og fólkinu á bak við hana.

Hjá HD eru gæði, öryggi og rekjanleiki samofin. Skýrir verkferlar, hæft starfsfólk og viðurkennd stjórnunarkerfi styðja við faglega og áreiðanlega framkvæmd – frá undirbúningi til afhendingar.

Vottanir HD staðfesta þá faglegu umgjörð og gæðamenningu sem starfsemin byggir á og veita viðskiptavinum aukið öryggi í framkvæmd verkefna.

Gæði í framkvæmd

Gæði eru ekki tilviljun. Í verkefnum þar sem öryggi, ending og rekstraröryggi skipta máli þarf að vera hægt að treysta því að rétt verklag sé viðhaft í hverju skrefi.

Hjá HD eru gæðakröfur hluti af daglegu starfi. Skjalfestir verkferlar, reglulegt gæðaeftirlit og stöðug þróun þekkingar stuðla að samræmdum vinnubrögðum og faglegri framkvæmd.

Gæði hjá HD byggja meðal annars á:

  • Skýrum og skjalfestum verkferlum
  • Hæfu og vottaðu starfsfólki
  • Rekjanleika þar sem við á
  • Reglulegu gæðaeftirliti
  • Öryggi í fyrirrúmi
  • Stöðugum umbótum og þróun þekkingar

Öryggi í fyrirrúmi

Örugg framkvæmd verkefna er grundvallaratriði í starfsemi HD. Áhættur eru metnar áður en vinna hefst og verkefni skipulögð með hliðsjón af aðstæðum, búnaði og þeim kröfum sem gilda á hverjum verkstað.

Með markvissri fræðslu, skýrum vinnureglum, reglulegu eftirliti og stöðugum umbótum vinnur HD að því að skapa öruggt starfsumhverfi fyrir starfsfólk, samstarfsaðila og viðskiptavini.

Öryggi er hluti af menningu HD – ekki aðeins verkferlum.

Vottanir HD

HD vinnur samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum stöðlum sem styðja við gæði, öryggi og rekjanleika í starfseminni. Vottanirnar staðfesta að stjórnunarkerfi, framleiðsluferlar og vinnubrögð uppfylli skilgreindar kröfur.

Fyrir viðskiptavini þýðir þetta meðal annars:

  • Samræmd og skjalfest vinnubrögð
  • Rekjanleiki þar sem við á
  • Aukið öryggi og minni áhættu
  • Gæði sem standast alþjóðlegar kröfur
  • Áreiðanleg framkvæmd og stöðugar umbætur

ISO 9001 Gæðastjórnunarkerfi

HD er vottað samkvæmt ISO 9001 af BSI (British Standards Institution).

ISO 9001 er alþjóðlegur staðall fyrir gæðastjórnunarkerfi sem styður við skýra ferlastýringu, samræmd vinnubrögð og stöðugar umbætur í allri starfsemi fyrirtækisins.

Vottunin nær yfir starfsemi HD og staðfestir að fyrirtækið vinni samkvæmt skilgreindum og skjalfestum ferlum með áherslu á gæði, þjónustu og þarfir viðskiptavina.

Sækja ISO 9001 skírteini – pdf

ISO 3834-2 Gæði í suðuvinnu

HD býr yfir áratuga reynslu af verkefnum þar sem suðuvinna gegnir lykilhlutverki. Fyrirtækið er vottað samkvæmt ISO 3834-2 af TÜV Nord.

Vottunin styður við örugga og faglega framkvæmd verkefna þar sem gæði suðuvinnu og áreiðanleiki skipta sköpum.

Staðallinn skilgreinir gæðakröfur fyrir suðuvinnu og nær meðal annars til:

  • Hæfni starfsfólks
  • Suðuferla og verklags
  • Gæðaeftirlits og prófana
  • Skjölunar og rekjanleika

Vottunin styður við örugga og faglega framkvæmd verkefna þar sem gæði suðuvinnu og áreiðanleiki skipta sköpum.

Sækja ISO 3834-2 skírteini

EN 1090 EXC1–EXC4 Stálsmíði og burðarvirki

HD er vottað samkvæmt EN 1090 af TÜV Nord og hefur heimild til að CE-merkja burðarvirki úr stáli.

Vottunin nær til allra framkvæmdaflokka, EXC1–EXC4, og gerir HD kleift að framleiða allt frá einföldum stálvirkjum til flókinna burðarvirkja fyrir mannvirki og iðnað s.s. brýr, háspennuturna og stór iðnaðarverkefni.

Staðallinn gerir kröfur til framleiðsluferla, gæðaeftirlits, skjalfestingar og rekjanleika og staðfestir að framleiðslan uppfylli viðurkenndar evrópskar kröfur.

Fyrir viðskiptavini þýðir þetta meðal annars:

  • Vottaða framleiðslu- og suðuferla
  • Örugga og rekjanlega framkvæmd
  • Samræmi við evrópskar kröfur
  • CE-merkingu þar sem við á
  • Getu til að sinna verkefnum í öllum framkvæmdaflokkum EXC1–EXC4

Sækja EN 1090 skírteini

Næsta skref – ISO 14001

HD hefur hafið undirbúning að innleiðingu ISO 14001, alþjóðlegs staðals um umhverfisstjórnun.

Með innleiðingunni verður umhverfisstjórnun markvissari hluti af daglegum rekstri HD. Áhersla verður meðal annars lögð á betri nýtingu auðlinda, minni sóun, ábyrga meðhöndlun úrgangs og efna, minni umhverfisáhrif og stöðugar umbætur.

Innleiðing ISO 14001 er næsta skref í áframhaldandi þróun stjórnunarkerfa HD og styður við ábyrgari og sjálfbærari starfsemi.

Ástandsgreiningar og NDT

Gæðastarf HD nær lengra en til stjórnunarkerfa og vottaðrar framleiðslu. Fyrirtækið býr yfir sérþekkingu á sviði ástandsgreininga og skaðlausra prófana (NDT) sem styðja við öruggari og áreiðanlegri rekstur búnaðar og mannvirkja.

Með reglulegum skoðunum og mælingum er hægt að greina frávik áður en þau þróast í kostnaðarsamar bilanir, lengja líftíma búnaðar og draga úr rekstraráhættu.

HD býður meðal annars:

Skírteini og vottorð

Viðskiptavinir geta hér nálgast helstu skírteini og vottorð HD til niðurhals.

  • ISO 9001 – Gæðastjórnunarkerfi
  • ISO 3834-2 – Gæðakröfur í suðuvinnu
  • EN 1090 EXC1–EXC4 – Vottuð framleiðsla burðarvirkja
  • Aðrar hæfnisvottanir

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.