HD og hugbúnaðarfyrirtækið Tero hafa tekið höndum saman um að tengja ástandsvöktun og -greiningar á vélbúnaði, við viðhaldsstjórnun. Markmiðið er að greina frávik snemma og tryggja að upplýsingar um ástand búnaðar leiði til réttra aðgerða á réttum tíma. Samstarfið verður kynnt á IceFish 2026.
Óvænt bilun í lykilbúnaði getur með litlum fyrirvara stöðvað veiðar, vinnslu eða aðra mikilvæga starfsemi og haft verulegan kostnað í för með sér. Búnaður gefur hins vegar oft merki um breytingar áður en bilun verður. Með ástandsvöktun og greiningum er hægt að koma auga á þessi frávik og bregðast fyrr við.
HD hefur um árabil sinnt fjölbreyttum verkefnum fyrir sjávarútveginn og byggt upp sérþekkingu á ástandsvöktun og -greiningum vélbúnaðar. Þegar mælingar gefa vísbendingar um frávik geta sérfræðingar HD greint orsökina, metið hversu brýnt er að bregðast við og fylgt málinu áfram í viðhald eða viðgerð.
Frá fyrstu vísbendingu til lokinnar viðgerðar
Samstarfið við Tero tengir ástandsgreiningar HD við viðhaldsstjórnun. ro hefur þróað hugbúnað fyrir viðhald í meira en þrjá áratugi og er ViðhaldsStjórinn vel þekkt lausn fyrirtækisins. Á þeim grunni hefur Tero þróað Tero.Ops, nýja kynslóð hugbúnaðar fyrir viðhald og rekstur.
„Við viljum geta fylgt viðskiptavininum alla leið – frá því að greina ástand búnaðar og sjá hvar þörf er á aðgerðum yfir í skipulag, undirbúning og framkvæmd. Með samstarfinu við Tero getum við tengt þessa þætti betur saman og gefið viðskiptavinum skýrari sýn á sinn búnað og rekstur,“ segir Valgeir Pétursson, sviðsstjóri tæknisviðs HD.
Sem dæmi má taka dælu í fiskvinnslu þar sem mælingar sýna stigvaxandi frávik. Sérfræðingar HD greina orsökina og í Tero.Ops er viðhaldsverkefnið skipulagt þannig að það raski rekstrinum sem minnst. Ef þörf krefur annast HD framkvæmdina.
Að verki loknu er framkvæmdin skráð í sögu búnaðarins og upplýsingarnar nýtast áfram við eftirlit og ákvarðanir um viðhald. Þannig verður til samfella frá fyrstu vísbendingu um frávik til lokinnar viðgerðar. Markmiðið er að auðvelda fyrirtækjum að bregðast fyrr við, skipuleggja viðhald betur og draga úr hættu á óvæntum rekstrarstöðvunum.
Sjáðu lausnina í verki á IceFish
Á bás HD, C36, verður sýningarvél með ástandsvöktun tengd við Tero.Ops. Þar geta gestir fylgst með í rauntíma hvernig mælingar gefa vísbendingu um frávik og hvernig upplýsingarnar nýtast áfram við greiningu, skipulagningu og framkvæmd.
Kíktu við, sjáðu lausnina í verki og ræddu við sérfræðinga HD og Tero um ástand búnaðar í þínum rekstri.
HD býður viðskiptavinum frían aðgang á sýninguna! Hafðu samband á sala@hd.is og við sendum þér boðskóða.
Með samstarfinu við Tero getum við tengt þessa þætti betur saman og gefið viðskiptavinum skýrari sýn á sinn búnað og rekstur,“ segir Valgeir Pétursson, sviðsstjóri tæknisviðs HD