Við bjóðum upp á úrval af sérhæfðum skynjurum sem henta fyrir ýmsar aðferðir í ástandsgreiningu vélbúnaðar – allt frá einföldum punktmælingum yfir í snjalla IoT-vöktun í rauntíma. Hvort sem þú ert að leita að lausnum fyrir titring, hita, hljóð, loftleka, rafmerki eða sveiflur, þá höfum við skynjara sem henta þínum rekstri og mælikröfum.
Skynjararnir okkar nýtast m.a. við:
– Titringsgreiningu (vibration sensors)
– Hitamælingar og hitamyndun (infrared/thermal)
– Hátíðnihlustun (ultrasound sensors)
– Rafmerkjagreiningu (electrical signature analysis)
– Föst kerfi og færanlegar lausnir fyrir sívöktun