Rafmótorar

Áreiðanleiki, ending og afköst skipta öllu máli þegar kemur að rafmótorum – sérstaklega þegar þeir eru hluti af lykilbúnaði eins og dælum og vinnslukerfum. Hjá HD leggjum við áherslu á að bjóða viðskiptavinum okkar mótora sem standast kröfur atvinnulífsins – dag eftir dag, ár eftir ár. Við treystum á rafmótora frá TEC Electric Motors, sem hafa reynst frábær kostur í íslensku umhverfi – bæði hvað varðar tæknilega eiginleika og hraða afhendingu.

HD býður upp á hágæða rafmótora frá TEC Electric Motors – einum af leiðandi framleiðendum í Evrópu. TEC mótorar eru þekktir fyrir áreiðanleika, öfluga frammistöðu og henta fyrir fjölbreytt verkefni í iðnaði, landbúnaði, sjávarútvegi og byggingariðnaði.

HD hefur átt farsælt samstarf við TEC um árabil og eigum alltaf mikið úrval mótora á lager, frá 0 upp í 45 kW. Stærri mótorar, DC mótorar og sértækar útfærslur eru sérpantaðar með stuttum afgreiðslutíma.

Við mælum með hágæða TEC mótorum með öllum dælubúnaði frá HD – þar sem mótorinn hefur lykiláhrif á afköst, orkunýtni og endingartíma kerfisins.

  • Áreiðanlegir og endingargóðir
  • IP55 vottun – vatns- og rykþétt kælikerfi
  • Breitt úrval – 0,09 til 315 kW, 2–8 póla
  • Sérlausnir – DC mótorar, bremsumótorar, sprengivarnir o.fl.
  • Hámarks orkunýtni – uppfyllir IE2 og IE3 orkustaðla
  • Vottaðir samkvæmt ISO 9001, CE og IEC

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.