HD og samfélagið

HD vill vera virkur þátttakandi í samfélaginu og styðja við verkefni sem hafa jákvæð áhrif í nærumhverfi okkar. Með styrkjum og samstarfi leggjum við sérstaka áherslu á menntun, þekkingaröflun og þróun í iðn- og tæknigreinum.

Gildi okkar – öryggi, heiðarleiki, þjónustulund og fagmennska – leiða okkur í daglegum rekstri og samskiptum við starfsfólk, birgja og viðskiptavini. Styrktarstefna HD endurspeglar þessi gildi og styður við verkefni sem tengjast kjarnastarfsemi félagsins eða hafa jákvæð áhrif í samfélaginu þar sem starfsstöðvar okkar eru staðsettar.

Áherslur í styrktarstarfi 

Við styðjum verkefni sem samræmast gildum okkar og hafa skýra faglega eða samfélagslega skírskotun. Sérstök áhersla er lögð á menntun og þekkingaröflun, þar sem við styðjum námsfólk í iðn- og tæknigreinum á öllum skólastigum með það að markmiði að efla hæfni framtíðarstarfsfólks og stuðla að framþróun greinarinnar. Áhersla er lögð á:

  • Nýsköpun og tækniframfarir: Hvatning til náms og starfsþróunar í iðn- og tæknigreinum
  • Sjálfbærni og ábyrgð: Stuðningur við verkefni sem efla sjálfbæra nýtingu auðlinda og ábyrga stjórnarhætti

  • Samfélagsverkefni: Verkefni sem stuðla að jákvæðum breytingum í nærumhverfi okkar

Umsóknir skulu sendar rafrænt í gegnum heimasíðu HD ásamt viðeigandi fylgigögnum. Umsóknir um styrki eru teknar fyrir ársfjórðungslega. Allar umsóknir eru metnar á grundvelli styrktarstefnu HD og svar sent að úrvinnslu lokinni.

Fyrirspurnir sendast á styrkir@hd.is

Upplýsingar um umsækjanda:

Upplýsingar um verkefni

Annað

Tekið á móti nemendum í GRÓ Geothermal Training Programme.

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.