Chopper Pump
Vaughan Chopper Pump er öflug miðflóttaaflsdæla með samþættu saxkerfi sem brýtur niður föst efni strax við inntakið, áður en þau komast að dæluhjólinu. Þetta dregur verulega úr hættu á stíflum og verndar bæði dæluna og búnaðinn sem á eftir kemur – sem skilar sér í áreiðanlegum rekstri og minni viðhaldskostnaði.
Dælan hentar sérlega vel fyrir fráveitukerfi, en er einnig fáanleg í útfærslu fyrir lensibrunna skipa, þar sem hún vinnur auðveldlega með efni eins og hausa, hryggi og spotta.
Einkaleyfisvarið skurðarblaðakerfi Vaughan er úr hitameðhöndluðu steyptu stáli og hefur mikinn högg- og slitstyrk. Það saxar vandræðavaldandi efni eins og bleyjur, efnisbúta og snæri með mikilli nákvæmni og dregur verulega úr hættu á stíflum.
HD er umboðsaðili Vaughan Pumps á Íslandi og veitir faglega ráðgjöf um val og útfærslu fyrir fráveitur, skip og iðnað.
